Með dellu fyrir gömlum græjum Elín Albertsdóttir skrifar 20. júlí 2019 09:45 Tómas leikur hér á harmóníku sem var í eigu afa hans. Fréttablaðið/Stefán
Tómas hafði ekki heyrt af þessari samlíkingu en var stoltur af. „Báðir hafa verið í miklu uppáhaldi hjá mér og þeir hafa verið mínar fyrirmyndir,“ segir hann. Tómas er aðeins 26 ára en hann hefur leikið á píanó frá sjö ára aldri Tómas Jónsson hljómborðsleikari hefur vakið mikla athygli að undanförnu, bæði með Jónasi Sig, djasssveitinni ADHD og Júníusi Meyvant. Tómasi hefur verið líkt við bestu hljómborðs- og orgelleikara landsins, þá Eyþór Gunnarsson og Karl heitinn Sighvatsson. Tómas hafði ekki heyrt af þessari samlíkingu en var stoltur af. „Báðir hafa verið í miklu uppáhaldi hjá mér og þeir hafa verið mínar fyrirmyndir,“ segir hann. Tómas er aðeins 26 ára en hann hefur leikið á píanó frá sjö ára aldri. „Ég er yngstur þriggja systkina og þau eldri lærðu á píanó. Mér fannst það eiginlega skylda mín að gera það líka en þó ekki kvöð. Það stóð píanó í stofunni heima og úr því ég var orðinn sjö ára var eðlilegt í mínum huga að læra á það eins og fólk gerir,“ segir hann. „Pabbi spilaði á munnhörpu fyrir okkur og var í kirkjukór en annars var ekkert sérstaklega mikil tónlist í minni fjölskyldu. Reyndar voru báðir afar mínir harmóníkuleikarar og mjög músikalskir. Alnafni minn, Tómas Jónsson, bjó á Þingeyri og var þar allt í öllu. Kennari, skólastjóri, sparisjóðsstjóri og stjórnandi kirkjukórsins. Hann spilaði einnig á melódiku en ég hélt alltaf að hann væri saxófónleikari, það var leik-fangasaxófónn á heimilinu. Hinn af i minn, Ólafur Helgi Friðjónsson, var athafnamaður í Hafnarf irði. Hann var áhugaleikari, járnsmiður og radíóamatör. Í garðinum var stórt útvarpsmastur sem sást um allan bæ,“ útskýrir Tómas. „Ég eignaðist harmóníkurnar þeirra.“Í góðu sumarveðri er upplagt að fara utanhúss með nikkuna og taka nokkur lög.Fréttablaðið/StefánÆtlaði að verða rokkari Tómas segir að mestu tónlistaráhrifin hafi hann fengið frá vini sínum Rögnvaldi Borgþórssyni. „Við stofnuðum hljómsveit tíu ára og spilum enn saman. Röggi er gítarleikari en pabbi hans hafði mikil áhrif á okkur. Hann var músíkant og með eigið stúdíó. Við strákarnir vorum í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði, fengum að troða þar upp og mikla hvatningu. Ég hef sömuleiðis alltaf verið þakklátur tónmenntakennaranum mínum sem heitir Stefán E. Petersen en hann er sjálfur hljómborðsleikari. Hann sýndi okkar myndbönd með Elvis Presley og Led Zeppelin í bland við klassísk tónskáld. Ég hafði ekki mikinn áhuga á klassík á þeim tíma en það hefur breyst í seinni tíð þótt ég hafi aldrei haft áhuga á því að vera klassískur píanóleikari. Ég kaupi oft Best of plötur með gömlum tónskáldum til að fá yfirsýn yfir stíl hvers og eins. Rakhmanínov og Wagner finnst mér mjög áhugaverðir. Annars er ég algjör nýgræðingur í þeirra heimi,“ segir Tómas og bætir við að djassmúsík og sú tónlist sem hefur þróast út frá henni heilli hann mest auk rokks og popps. „Tónlist sem er lifandi og spunnin höfðar mjög til mín. Ég ætlaði alltaf að vera rokkari.“ Deep Purple hafði áhrif Tómas uppgötvaði þegar hann var ellefu ára að þessi píanómúsík sem hann hafði verið að læra í nokkur ár væri ekki í neinum takti við rokkið sem hann dreymdi um. „Á tímabili velti ég því fyrir mér að skipta um hljóðfæri en uppgötvaði þá Deep Purple. Í þeirri sveit var orgelleikari sem hét Jon Lord og lék á Hammond-orgel. Hann hafði gríðarleg áhrif á mig og ég ákvað að verða rokkorgelleikari. Ég spila mikið á Hammond-orgel og það er orðið eitt af mínum aðalhljóðfærum. Tónlist Karls Sighvatssonar hefur einnig haft áhrif á mig og ég hef mikið stúderað hana. Það er merkilegt hvað hann gerði með Hammond-orgelið fyrir íslenska tónlist. Ég er ákaflega stoltur af því að eiga eitt af hans orgelum eða að minnsta kosti er ég með það í eilífðarfóstri,“ segir Tómas.Tómas á mikið safn gamalla hljóðfæra og þau eru í raun áhugamál hans. Hér situr hann við Hammond L-122. Fréttablaðið/StefánSaga um orgel Kalla Sighvats Þegar hann er spurður hvernig það hafi komi til að hann sé með orgelið heima hjá sér, svarar hann með sögu. „Ég bý í Þorlákshöfn og Kalli var hér mikið á síðustu árum sínum. Hann var organisti í kirkjunni og var með aðstöðu í Hveragerði til að geyma öll orgelin sem hann átti. Þegar hann flutti sig um set borgaði hann flutningabílstjóranum með þessu orgeli. Ekki veit ég framhald sögunnar nema að maður hér í Þorlákshöfn var með það í bílskúrnum. Hann sá mig spila á tónleikum á svipað orgel, Farfisa, sem er „sixties“ og bauð mér sitt. Mér finnst stórkostlegt að vera með orgel sem var í höndum Kalla þótt það sé reyndar bilað. Ég hef einhvers konar áráttu fyrir gömlum græjum og hef sankað þeim að mér. Fjölskyldu minni til ama þá eru allar geymslur fullar af gömlum græjum,“ segir Tómas en upplýsir að mjög margt sé þó í stöðugri notkun. Plata á leiðinni Tómas hefur gefið út eina plötu undir eigin nafni og er með tvær á leiðinni. Hann vonast til að koma annarri þeirra út fyrir jólin. Kona hans heitir Ása Berglind Hjálmarsdóttir og þau eiga eitt barn saman en hún átti áður tvö. Fjölskyldan er á leið í Borgarfjörð eystra með tjaldvagn en Tómas verður með Jónasi Sig og ritvélum framtíðarinnar á maraþontónleikum. Þar mun Jónas taka fyrir allar sínar plötur. Þá munu þeir einnig koma fram á Bræðslunni. Tómas er sömuleiðis í hljómsveitinni ADHD sem hefur verið að leika víða um heim og verður með tónleika í Norræna húsinu 14. ágúst. Í þeirri hljómsveit eru bræðurnir, Ómar og Óskar Guðjónssynir, Magnús Trygvason Eliassen auk Tómasar. Að auki hefur Tómas ferðast um með Júníusi Meyvant á tónleikum og er á leið til Bandaríkjanna með honum síðar í sumar. Þá spilar Tómas einnig með hinum og þessum tónlistarmönnum í stúdíóvinnu svo hann kemur víða við.Tómas Jónsson, hljómborðsleikari.Dellukarl Tómas spilar mikið á hljóðgervla, aðallega frá áttunda og níunda áratugunum. „Í græjum leita ég til fortíðar og nota mikið að þessum hljóðgervlum á plötunum mínum. Nýjar græjur eiga til að vera karakterlausar. Á sjötta, sjöunda, áttunda og níunda áratugunum kom á markað ótrúlega mikið af rafmagnshljóðfærum sem höfðu einstakan karakter. Meira að segja miklu fyrr því Hammond-orgel voru fyrst framleidd árið 1935. Ég hef orðið mér úti um gömlu græjurnar hér á landi, á netinu og á ferðalögum. Í Japan er til fullt af spennandi svona dóti, sér í lagi synthesizerum, því mikið af þeim var framleitt þar á sínum tíma. Japönsk menning byggir á virðingu fyrir hlutum og þeim er haldið vel við. Það má kannski segja að ég sé dellukarl. Þetta er mitt helsta áhugamál sem samvefst auðvitað tónlistinni. Stundum hlusta ég á tónlist sem mér finnst leiðinleg en hef áhuga fyrir tækjunum sem eru notuð,“ útskýrir hann. „Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að vinna við tónlist og hlakka til komandi viku. Vinnan getur líka stundum verið þægileg þegar maður er með lítið barn ef maður er laus við á daginn, eins og núna þegar allir eru í sumarfríi,“ segir Tómas sem var á göngu með barnavagninn þegar við ræddum við hann. Gangan var til þess að svæfa barnið og það tókst.
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Mest lesið Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp „Þú varst að tala um Klausturmálið!“ Lífið Jay Leno illa leikinn og með lepp Lífið Khalid kemur út úr skápnum Lífið Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Tónlist „Þetta var það erfitt, að við vorum öll dofin“ Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira