Fimmtudagsbolti hjá Wolves og Steven Gerrard í vetur Anton Ingi Leifsson skrifar 29. ágúst 2019 20:45 Leikmenn Wolves fagna sigri í kvöld. vísir/getty Wolves tryggði sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í vetur eftir 2-1 sigur á Torino í síðari leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar. Fyrri leiknum lauk með 3-2 sigri Wolves í fjörugum leik á Ítalíu og það var Portúgalinn Raul Jimenez sem kom Wolves yfir á 30. mínútu. Þannig stóðu leikar þangað til á 57. mínútu er Andrea Belotti jafnaði metin. Einungis mínútu síðar komst Wolves aftur yfir með marki Leander Dendoncker.FT | #WOL 2-1 #TOR And that's full time! Wolves with a 5-3 aggregate win over @TorinoFC_1906! Raul Jimenez and Leander Dendoncker on target for the home side. #WOLTORpic.twitter.com/pqltxOkA8H— Wolves (@Wolves) August 29, 2019 Fleiri urðu mörkin ekki og samanlagt 5-3 sigur Wolves sem spilar fimmtudagsbolta í Evrópudeildinni í vetur. Steven Gerrard og lærisveinar hans verða einnig í riðlakeppninni í vetur eftir að Alfredo Morales skoraði sigurmarkið á 90. mínútu gegn Legia Varsjá.FULL-TIME: Rangers 1-0 Legia Warsaw (Agg 1-0)@EuropaLeague - WE ARE ON OUR WAY! pic.twitter.com/uOBAvK05aW— Rangers Football Club (@RangersFC) August 29, 2019 Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli og mark Alfredo var fyrsta og eina mark leiksins í Skotlandi í kvöld. Dramatík hjá Gerrard. Evrópudeild UEFA