Karakterarnir koma til hans Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar 6. september 2019 07:30 Myndin Wilma eftir Hauk Björgvinsson er tilnefnd til Gullna eggsins á RIFF-hátíðinni í ár. Fréttablaðið/Anton Brink
Kvikmyndagerðarmaðurinn Haukur Björgvinsson hefur í nógu að snúast þessa dagana. Nú er hann á fullu að fylgja eftir stuttmynd sinni Wilmu, en hún hefur fengið boð á nokkrar erlendar kvikmyndahátíðir en verður frumsýnd hérlendis á RIFF-hátíðinni seinna í september. Myndin fjallar um stelpu sem fæðist í líkama stráks og fyrstu kynni hennar af föður sínum.Vinnur að mynd í fullri lengd „Ég var lengi búinn að ganga með þessa karaktera í maganum og langaði því að sjá hvernig þeir gengju í stuttmynd áður en maður færi að hugsa um stærra svið. Það skemmtilega við að sýna myndina er að allir eru sammála um að þessir karakterar eigi skilið mynd í fullri lengd og ég er því að vinna að slíku handriti um þessar mundir.‘‘ Hann segir aðalleikarann, Snævar Valdimarsson Steffensen, hafa staðið sig einstaklega vel. „Það var dásamlegt að vinna með Snævari sem lék aðalhlutverkið, Wilmu. Þó að hann sé ungur að aldri var hann þolinmóður og einbeittur allan tímann og stóð sig eins og hetja. Ég held að hann eigi framtíðina fyrir sér í leiklist.Breyttir tímar Hann segist aldrei setjast niður með það að leiðarljósi að ætla að skrifa mynd, heldur komi til hans karakterar sem hann vinni út frá. „Ég ákveð aldrei að skrifa mynd. Karakterarnir koma til mín fyrst. Mér finnst mjög gaman að fylgjast með fólki, til dæmis í matvörubúðum. Þar fylgist ég kannski með því hvernig fólk er að tala saman. Það er svo margt fallegt og skrýtið, en líka sorglegt, sem maður tekur eftir bara með því að standa í grænmetisdeildinni í Hagkaup,“ segir Haukur og heldur svo áfram „Ég fór svo að hugsa um það hvernig allt er að breytast hratt og hve opnari við erum orðin sem samfélag. Því fylgir að nú er algengara að krakkar eru mjög snemma að átta sig á sinni kynvitund. Í þessum vangaveltum urðu þessi karakterar til.“ Hann segir að oft séu krakkarnir sjálfri reiðubúnir að koma út sem trans en samfélagið eða einstaklingar innan þess ekki alltaf tilbúnir sjálfir. „Það sem mér finnst áhugavert í kvikmyndagerð er að við fáum tækifæri til að skyggnast betur í ástæðu og orsök fyrir því af hverju fólk lætur eins og það lætur. Við fáum að sjá hvernig samfélagið brýtur niður fólk og gerir það kannski þreytt og leitt. Mér finnst það oft vera kjarninn í kvikmyndagerð, að sjá einhverja fegurð í hlutum eða það sorglega.“Heiður að vera valinn á RIFF Hann segist því vinna með þá hugsjón að karakterar sem hann skapar séu á vissan hátt að bregðast við umhverfi og aðstæðum á sinn hátt. Hauki þykir áhugavert að skoða þá umbrotatíma sem við lifum á, sérstaklega þegar það kemur að mannlegum samskiptum. „Þetta er ekki lengur þessi staðlaða hugmynd um mömmu, pabba, börn og bíl. Tímarnir eru að breytast og nú hefur fólk frelsi til að vera eitt, konur geta sjálfar eignast börn, fólk má elska þá sem það vill og vera eins og það vill. Fólk er opnara en það eru auðvitað ekki allir sem gera það eða þora það. Í Wilmu, sem er stelpa fædd í líkama stráks, er hún að hitta föður sinn í fyrsta skiptið og hann veit ekkert í hvaða box hann á að setja hana. Síðan læra þau svolítið saman að verða vinir.“ Eins og áður segir er myndin frumsýnd hérlendis á RIFF. Myndin er eina íslenska myndin sem er tilnefnd til Gullna eggsins í sínum flokki. „Mér þykir sérstaklega vænt um að Wilma verður sýnd á RIFF. Ég hef lengi sótt hátíðina og þykir mjög vænt um hana. Það eru rosaleg verðmæti í því að hafa alþjóðlega kvikmyndahátíð og þannig færa borgarbúum öðruvísi bíómyndir sem hefðu að öllum líkindum aldrei verið sýndar hérna heima.“
Birtist í Fréttablaðinu Bíó og sjónvarp Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Tíska og hönnun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Lífið Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist Fleiri fréttir Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Sjá meira