Lífið

Köngulóarmaðurinn verður áfram í Marvel-heiminum og snýr aftur í þriðju kvikmyndinni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Tom Holland sést hér í hlutverki Köngulóarmannsins Peter Parker ásamt Jake Gyllenhaal í hlutverki Mysterio.
Tom Holland sést hér í hlutverki Köngulóarmannsins Peter Parker ásamt Jake Gyllenhaal í hlutverki Mysterio. Mynd/Disney
Aðdáendur Köngulóarmannsins, eða í það minnsta Köngulóarmannsins í núverandi mynd breska leikarans Toms Hollands, geta nú tekið gleði sína á ný eftir að kvikmyndaframleiðendurnir Sony og Marvel komust að samkomulagi um áframhaldandi veru hans í Marvel-heiminum.  

Áður hafði verið greint frá því að Marvel myndi ekki framleiða fleiri kvikmyndir um Köngulóarmanninn sökum ágreinings fyrirtækisins við kvikmyndaver Sony, sem á réttinn að Köngulóarmanninum. Disney, móðurfyrirtæki Marvel, hafði lagt til að kvikmyndaverin skiptu kostnaði og ágóða jafnt á milli sín í öllum verkefnum tengdum ofurhetjunni. Á það féllst Sony ekki.

Í kjölfarið lýstu aðdáendur margir yfir áhyggjum af framtíð Köngulóarmannsins, sem var sannarlega í lausu lofti á tímabili. Í gær var hins vegar tilkynnt um að samkomulag hefði náðst um þriðju myndina í geisivinsælli kvikmyndaröð Marvel um Köngulóarmanninn.

„Það gleður mig að tilkynna að ævintýri Köngulóarmannsins í söguheimi Marvel heldur áfram og ég, og við öll hjá Marvel-kvikmyndaverinu, erum afar spennt yfir því að fá að halda áfram að vinna við þau,“ sagði Kevin Feige, forstjóri kvikmyndaversins og einn aðalframleiðandi kvikmyndanna um Köngulóarmanninn.

Samningur milli Marvel og Sony um Köngulóarmanninn var undirritaður árið 2015. Hann kvað á um að ofurhetjan góðkunna myndi birtast í söguheimi Marvel, sem myndi jafnframt framleiða myndirnar.

Köngulóarmaðurinn, túlkaður af áðurnefndum Tom Holland, hefur því birst í nokkrum kvikmyndum Marvel; Captain America: Civil War, Avengers: Infinity War og Avengers: End Game; auk tveggja kvikmynda sem hverfast um hans eigin ævintýri, Spiderman: Homecoming og Spiderman: Far From Home.


Tengdar fréttir

Köngulóarmaðurinn ekki lengur hluti af Marvel heiminum

Kvikmyndaverið Marvel mun ekki framleiða fleiri kvikmyndir um köngulóarmanninn vegna þess að Sony kvikmyndaverið og Disney, sem á Marvel, ná ekki samkomulagi um fjármögnun Sony á myndum um ofurhetjuna í framtíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.