Horfa í ríkara mæli fram hjá gögnum Helgi Vífill Júlíusson skrifar 26. september 2019 06:00 Diðrik Örn Gunnarsson, faglegur framkvæmdastjóri MediaCom og Þórmundur Bergsson, framkvæmdastjóri MediaCom. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari „
Við höfum áhyggjur af því að fyrirtæki hætti að byggja ákvarðanir í markaðsmálum á gögnum þegar þau slíta samstarfi við auglýsingastofur og birtingahús. Það getur leitt til þess að fyrirtækin tapa milljónum því markaðsefnið nær ekki jafn greiðlega til markhópsins,“ segir Diðrik Örn Gunnarsson, faglegur framkvæmdastjóri, sem stýrir stafrænum hluta MediaCom á Íslandi. Þórmundur Bergsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að undanfarin ár hafi það færst í aukana að fyrirtæki taki yfir markaðsstarfið. Fyrir skemmstu hafi til að mynda verið upplýst um að Íslandsbanki hafi hætt viðskiptum við Brandenburg í því skyni að annast málin upp á eigin spýtur. „Fyrirtæki vinna alla jafna með mikið af gögnum sem skipta máli til að ná árangri, það má nefna sölutölur og neyslugögn í þeim efnum en af einhverjum ástæðum hafa þau í vaxandi mæli verið að horfa fram hjá gögnum um fjölmiðla. En þau skipta einmitt sköpum til að koma skilaboðum á framfæri á réttan markhóp með hagkvæmum hætti. Þetta leiðir til þess að starfsmenn fyrirtækja missa yfirsýn yfir hvernig best er að ná til markhópsins,“ segir hann. Diðrik Örn, sem er sérfræðingur í stafrænum miðlum, segir að sér þyki það skjóta skökku við að hætta að horfa til gagna um fjölmiðla þegar stór hluti af markaðsfé fyrirtækja er alla jafna varið í hefðbundna miðla. „Fyrirtæki horfa í ríkara mæli einkum til stafrænu gagnanna en ég held að það helgist af því að þær upplýsingar eru ókeypis. Það er hættuleg þróun.“ Hann segir að markaðsfólk verði að byggja ákvarðanir á gögnum en ekki á eigin tilfinningu. „Án gagna ertu bara einn af hópnum með sérlundaða skoðun.“ Þórmundur segir að þeir hafi áhyggjur af þróuninni. „Undanfarin ár hefur verið rekinn áróður gegn hefðbundnum miðlum í markaðsstarfi, eins og dagblöðum, sjónvarpi og útvarpi, og talað fyrir stafrænu miðlunum. Margir hafa í flimtingum að flestir séu hættir að horfa á sjónvarp og hlusta á útvarp. Hið rétta er að það hefur aldrei verið horft eins mikið á sjónvarp, og staða útvarps er sterk, það hlusta um 65 prósent fólks á útvarp daglega. Um 40 prósent fólks flettir Fréttablaðinu, það er um 100 þúsund manns. Þetta eru því mikilvægar boðleiðir til að ná til neytenda.“Netrisar í hefðbundna miðla Diðrik Örn segir að þróunin erlendis sé á þá vegu að öflug netfyrirtæki eins og Amazon, eBay, Facebook og Netflix séu farin að auglýsa í hefðbundnum miðlum. „Fáir búa yfir jafn mikilli þekkingu á gögnum og tækni og þau en engu að síður telja þau að mikilvægt sé að nýta líka hefðbundna miðla í markaðsstarfi. Sú þróun hófst fyrir um það bil ári,“ segir hann. Þeir segja að neytendur geri ekki greinarmun á stafrænni markaðssetningu og hefðbundinni. Þeir skoði vörur í símanum og kaupi í verslunum eða horfa á auglýsingaskilti frá banka sem hvetur fólk til að eiga bankaviðskipti á netinu. Þórmundur segir að í ljósi þess að fjölmiðlaneysla fólks nái yfir breitt svið þurfi auglýsendur að nýta fjölda miðla, allt frá hefðbundnum yfir í þá sem eru að skapa sér sess um þessar mundir. Að hans sögn eru auglýsingasölumenn með árangurstengdar tekjur og því getur verið óæskilegt að treysta um of á þá. Þeir séu ekki óháðir ráðgjafar heldur hafi hvata til að mæla einkum með eigin miðlum. Að sama skapi þurfi einnig að vakta birtingar í sjónvarpi og útvarpi til að tryggja að allt hafi gengið upp. Það sé ekki hægt án réttra gagna og hugbúnaðar. „Það getur verið um verulegar fjárhæðir að tefla fyrir fyrirtæki sem auglýsa árið um kring til dæmis í sjónvarpi.“
Birtist í Fréttablaðinu Fjölmiðlar Tengdar fréttir Vilja minnka markaðshluta Ríkisútvarps Rúm 59 prósent þeirra sem taka afstöðu í nýrri könnun vilja draga úr umsvifum eða að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði. Kjósendur Samfylkingarinnar og Vinstri grænna vilja helst óbreytt ástand. 11. september 2019 06:15 Tap útgefanda Morgunblaðsins, Mbl og K100 áttfaldast á tveimur árum Árið 2018 reyndist Árvakri hf. erfitt en fyrirtækið var rekið með 415 milljóna króna halla. 2. september 2019 15:34 DV tapaði 240 milljónum Útgefandi DV og vefmiðla þess, félagið Frjáls fjölmiðlun ehf., tapaði næstum 240 milljónum króna á síðasta ári 10. september 2019 08:36 Mest lesið Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira
Vilja minnka markaðshluta Ríkisútvarps Rúm 59 prósent þeirra sem taka afstöðu í nýrri könnun vilja draga úr umsvifum eða að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði. Kjósendur Samfylkingarinnar og Vinstri grænna vilja helst óbreytt ástand. 11. september 2019 06:15
Tap útgefanda Morgunblaðsins, Mbl og K100 áttfaldast á tveimur árum Árið 2018 reyndist Árvakri hf. erfitt en fyrirtækið var rekið með 415 milljóna króna halla. 2. september 2019 15:34
DV tapaði 240 milljónum Útgefandi DV og vefmiðla þess, félagið Frjáls fjölmiðlun ehf., tapaði næstum 240 milljónum króna á síðasta ári 10. september 2019 08:36