Gylfi með fyrirliðabandið í lífsnauðsynlegum sigri Everton | Öll úrslit dagsins Anton Ingi Leifsson skrifar 9. nóvember 2019 16:45 Gylfi í leiknum í kvöld. vísir/getty Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton og lék allan leikinn er Everton vann 2-1 sigur á Southampton á útivelli í enska boltanum í dag. Sigurinn afar mikilvægur fyrir Everton sem hefur gengið afleitlega undanfarið og var í kringum fallsætin er flautað var til leiks í dag. Hornspyrna Gylfi skilaði marki á fjórðu mínútu. Spyrnan rataði á kollinn á Mason Holgate sem kom boltanum áfram á annan uppaldan Everton-mann, Tom Davies, sem kom boltanum yfir línuna. Þannig stóðu leikar í hálfleik en á fimmtu mínútu síðari hálfleiks jöfnuðu gestirnir metin. Þar var að verki Danny Ings eftir afleitan varnarleik gestanna frá Liverpool-borg. Sigurmarkið skoraði hins vegar Brasilíumaðurinn Richarlison, stundarfjórðungi fyrir leikslok eftir frábæra fyrirgjöf Djibril Sidibe. Lokatölur 2-1.FULL-TIME Southampton 1-2 Everton Richarlison's volley ensures Everton pick up their first #PL away win of the season#SOUEVEpic.twitter.com/JJHaiRHDSY — Premier League (@premierleague) November 9, 2019 Eftir sigurinn er Everton í 13. sæti deildarinnar með fjórtán stig en vandræði Southampton halda áfram. Þeir eru í 19. sætinu með átta stig. Burnley rúllaði yfir West Ham á heimavelli. Ashley Barnes, Chris Wood og sjálfsmark Roberto, markvarðar West Ham, tryggðu Burnley sigurinn en Burnley í 9. sætinu eftir sigurinn. West Ham í því sextánda.1 - West Ham’s Roberto Jiménez is the first goalkeeper to score an own-goal in the Premier League since Huddersfield’s Jonas Lössl against Brighton in April 2018. Oops. — OptaJoe (@OptaJoe) November 9, 2019 Newcastle vann ansi góðan sigur gegn Bournemouth á heimavelli. Harry Wilson kom Bournemouth yfir en DeAndre Yedlin og Ciaran Clark tryggðu Newcastle sigurinn. Newcastle er komið upp í 11. sæti deildarinnar á meðan Bournemouth er áfram í 7. sætinu.Öll úrslit dagsins: Chelsea - Crystal Palace 2-0 Burnley - West Ham 3-0 Newcastle - Bournemouth 2-1 Southampton - Everton 1-2 Tottenham - Sheffield United 1-1 17.30 Leicester - Arsenal Enski boltinn