Þórey Vilhjálmsdóttir ráðgjafi hjá Capacent og Magnús Orri Schram framkvæmdastjóri og fyrrverandi alþingismaður eru nýtt par. Frá þessu greinir mbl.is.
Þórey vakti athygli í sumar þegar hún synti yfir Ermasundið með Marglyttunum en hún var á sínum tíma aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur dómsmálaráðherra.
Magnús Orri Schram var áður fjölmiðlamaður og einnig formaður þingflokks Samfylkingarinnar árið 2012 en hann sat á þingi á árunum 2009-2013.
Lífið