Í síðustu kjarasamningum var samið um styttingu vinnutíma félagsmanna VR sem svarar til níu mínútna á dag fyrir starfsmann í fullu starfi. Þessar níu mínútur jafngilda 45 mínútum á viku eða rúmlega þriggja klukkustunda á mánuði án skerðingar launa. Markmiðið með breytingunni var að gera vinnumarkaðinn fjölskylduvænni.
Það er svo fyrirtækjanna, í samstarfi við starfsfólk, að komast að niðurstöðu hvernig best sé að hátta styttingunni. Breytingin átti að taka gildi þann 1. desember. Tryggingafélögin VÍS og Sjóvá hafa til dæmis samið við starfsfólk sitt um styttri vinnudaga á föstudögum og tilkynnt um leið að útibú þeirra eru opin skemur á föstudögum.
Þrír kostir
Ölgerðin boðaði bílastjóra sína, starfsmenn á lager og verksmiðju á sinn fund á fimmtudag og föstudag í síðustu viku. Síðustu virku dagana fyrir mánaðarmót. Starfsmenn stóðu frammi fyrir þremur kostum:1. Ganga úr VR og í Eflingu
2. Halda sér í VR en vinna samkvæmt Eflingu
3. Að vera sagt upp frá og með næstu mánaðamótum með þriggja mánaðar uppsagnarfrest.
Sumir starfsmenn fengu afarkostina rétt fyrir lok vinnudagsins á föstudaginn, síðasta virka dag mánaðar.

Neituðu að skrifa undir
Samkvæmt heimildum Vísis neituðu starfsmenn að sætta sig við útspil Ölgerðarinnar. Forsvarsmenn Ölgerðarinnar brugðust við með því að segjast ekki ætla að þvinga hópinn til undirskriftar.Rætt yrði við starfsmennina aftur í vikunni sem nú er hálfnuð án þess að heyrst hafi frá yfirmönnum.
Uppsagnirnar hefðu átt að taka gildi um mánaðarmótin og starfsmönnum gert að vinna út febrúarmánuð.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur staðfest við fréttastofu að málið sé á borði VR og til skoðunar hjá lögfræðingum félagsins.
Fréttastofa leitaði viðbragða hjá Andra Guðmundssyni, forstjóra Ölgerðarinnar, sem var ekki við vinnu í dag.
Skilaboðum var komið til Júlíusar Steins Kristjánssonar mannauðsstjóra og óskað eftir viðbrögðum.
Uppfært klukkan 18:15. Ölgerðin biðst velvirðingar hafi starfsmenn upplifað samræmingaraðgerðir sem afarkosti í yfirlýsingu. Yfirlýsinguna má sjá í heild sinni hér að neðan.
Vegna fréttaflutnings af málefnum starfsfólks Ölgerðarinnar, er rétt að eftirfarandi komi fram.
Ölgerðin virðir alla kjarasamninga, réttindi og skyldur sinna starfsmanna og harmar rangfærslur þar um sem birst hafa.
Málið snýst um starfsmenn fyrirtækisins sem vinna í sömu deildum en eru í ólíkum stéttarfélögum. Unnið hefur verið að samræmingu, þannig að starfsmenn í sömu deildum séu allir að njóta sömu réttinda og skylda. Hafi starfsmenn upplifað þær aðferðir til samræmingar sem afarkosti, biðst Ölgerðin velvirðingar á því.
Í fréttaflutningi af málinu hefur verið tekið fram að starfsmönnum hafi verið boðið að afsala sér rétti til styttri vinnuviku. Það er rangt. Starfsmenn hafa þegar unnið sér slík réttindi inn og fengið greitt í samræmi við það um nokkurra ára skeið og hefur aldrei staðið til að gera breytingar á því.