Lífið

Steindi og Sigrún eignuðust sitt annað barn

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr. eða Steindi Junior.
Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr. eða Steindi Junior. Vísir/Vilhelm

Steinþór Hróar Steinþórsson sjónvarpsmaður og Sigrún Sigurðardóttir snyrti- og förðungarfræðingur eignuðust fyrir skömmu sitt annað barn. Fyr­ir á parið eina dóttur, Ronju Nótt, sem fæddist árið 2014.

Steinþór, sem er betur þekktur undir nafninu Steindi Jr., greinir frá fæðingu barnsins á Instagram-reikningi sínum í dag.

„Við gæt­um ekki verið ham­ingju­sam­ari með nýja fjöl­skyldumeðlim­inn og ég gæti ekki verið stolt­ari af Sigrúnu að hafa gengið í gegn­um þetta aft­ur. Því­líkt hörku­tól. Móður og barni heils­ast vel,“ skrifar Steindi á Instagram.

Með fylgja myndir af fjölskyldunni sem nú hefur stækkað um einn. Færsluna má sjá hér að neðan.

Steindi hafði þegar greint frá því að þau Sigrún ættu von á annarri stúlku. Það varð honum ljóst þegar svokölluð „kynjablaðra“ sprakk yfir hann með eftirminnilegum hætti.

Í spilaranum hér að neðan má horfa á viðtal Stefáns Árna Pálssonar við Steinda í þættinum Einkalífinu í nóvember í fyrra.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.