Tónlist

Samkoma: Tónleikar með Bríeti

Tinni Sveinsson skrifar
Bríet heldur afslappaða tónleika yfir morgunbollanum klukkan ellefu.
Bríet heldur afslappaða tónleika yfir morgunbollanum klukkan ellefu.

Klukkan ellefu heldur tónlistarkonan Bríet tónleika hér á Vísi.

Tónleikaröðin nefnist Samkoma og eru tónleikarnir allir í beinni útsendingu hér á Vísi klukkan ellefu á morgnana. Það þýðir að tónlistarmennirnir flytja tónlist sína á afslappaðan máta yfir kaffibollanum.

Hægt er að horfa á beinu útsendinguna hér fyrir neðan en einnig á Facebook-síðu Vísis og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísir á kerfum Vodafone og Símans.

Klippa: Samkoma - Bríet

Vísir hefur fengið leikstjórann Ágúst Bent til liðs við sig til að halda utan um tónleikana og er framleiðslan í höndum Skjáskots.

Bríet hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi í tvö ár. Mörg laga hennar hafa notið mikilla vinsælda og hún hefur bæði unnið til Íslensku tónlistarverðlaunanna og Hlustendaverðlaunanna. Með Bríeti kemur fram píanóleikarinn Magnús Jóhann.

Ellen Kristjáns, Teitur Magnússon, Sturla Atlas og Krummi Björgvinsson hafa öll flutt afar vel heppnaða tónleika í tónleikaröðinni Samkoma hér á Vísi. Hægt er að horfa á tónleika þeirra í greinunum sem eru tengdar hér fyrir neðan.

Í tónleikaröðinni Samkoma mæta þekktir íslenskir tónlistarmenn og flytja tónlist sína á afslappaðan máta yfir morgunbollanum. Tónleikarnir eru unnir í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Kjarvalsstofu.


Tengdar fréttir

Tónleikar með Sturla Atlas

Sturla Atlas heldur afslappaða tónleika yfir morgunbollanum í tónleikaröðinni Samkoma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.