Fyrsti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum í Man. Utd Anton Ingi Leifsson skrifar 1. janúar 2020 21:45 Arteta var líflegur í kvöld eins og í fyrri leikjum hans sem stjóri Arsenal. vísir/getty Mikel Arteta vann sinn fyrsta leik sem stjóri Arsenal er liðið vann 2-0 heimasigur á Manchester United í lokaleik dagsins í enska boltanum. Fyrsta mark leiksins kom strax á áttundu mínútu. Pierre-Emerick Aubameyang og Mesut Özil þræddu sig upp vinstri kantinn, sá þýski sendi fyrir markið og Nicolas Pepe kom boltanum í netið. Since the start of last season, only Lionel Messi has more left-footed league goals in Europe's big five leagues than Nicolas Pepe... 24 #ARSMUN LIVE: https://t.co/49H7w3R7pGpic.twitter.com/ioyoG3hKdX— Match of the Day (@BBCMOTD) January 1, 2020 Pepe hefur ekki verið fastamaður í liði Arsenal það sem af er leiktíðinni en hann var staðráðinn í að sýna sig í kvöld. Hann átti stóran þátt í öðru marki Arsenal sem tvöfaldaði forystuna á 42. mínútu. Hornspyrna hans var fleytt áfram af Alexandre Lacazette og Sokratis kom boltanum í netið. 8 - Arsenal have scored eight goals via corners in the Premier League this season, two more than any other team. Swingers. #ARSMUNpic.twitter.com/hUvUTfXUQD— OptaJoe (@OptaJoe) January 1, 2020 Staðan 2-0 í hálfleik og ljóst að Ole Gunnar Solskjær þurfti að breyta einhverju ef ekki illa ætti að fara. Hann gerði tvöfalda breytingu eftir klukkutímaleik sem skilaði litlu. Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 2-0. Arsenal er því komið upp í tíunda sætið með 27 stig en Manchester United er í fimmta sætinu með 31 stig. FT A great performance by the Gunners! Arsenal 2-0 Man Utd#ARSMUN reaction: https://t.co/j6nPd5R0Sopic.twitter.com/xj7Gez8QaJ— BBC Sport (@BBCSport) January 1, 2020 United mistókst því að minnka forskot Chelsea niður í tvö stig í baráttunni um Meistaradeildarsæti en Chelsea gerði jafntefli við Brighton fyrr í dag. Enski boltinn