Allkröpp lægð fer þvert norðaustur yfir landið Atli Ísleifsson skrifar 26. maí 2020 07:15 Spákortið fyrir klukkan 14 eins og það lítur út núna í morgunsárið. Veðurstofan
Allkröpp lægð hreyfist þvert norðaustur yfir landið í dag, en lægðinni fylgir óstöðugt loft með skúradembum eða rigningu og strekkingsvestanvindum, sér í lagi á Suðausturlandi. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að þó dragi heldur úr vindi og úrkomu upp úr hádegi, en megi reikna með suðvestlægari og skúraleiðingum með kvöldinu. Hitatölur verða frekar í lægri kantinum, mest 13 stig suðaustan til. „Næsta lægð er í farvatninu, en hún myndast úr lægðardragi, sem nálgast Hvarf, en tekur síðan stefnuna norðaustur yfir Grænlandshaf. Í fyrramálið verður farið að rigna eða súlda á suður- og vesturhluta landsins og bætir í vætuna þegar líður á daginn. Austan til helst þó þurrt að kalla og þar hlýnar heldur betur, með hita að 16 stigum þegar best lætur. Útlitið fram yfir helgi er tvískipt: votviðrasamt á suðurhelmingnum, en þurrt að mestu og hlýtt fyrir norðan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestan 10-18 m/s og rigning, hvassast NV til, en þurrt að kalla Austurlandi og Austfjörðum. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast fyrir austan. Á fimmtudag: Suðlæg átt, 5-13 m/s og dálítil rigning eða súld, en bjart með köflum á N- og A-landi. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast NA-lands. Á föstudag: Suðaustlæg átt, 8-15 m/s og rigning eða súld, en bjartviðrið NA-lands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast NA til. Á laugardag: Hæg sunnanátt og skúrir eða rigning, en yfirleitt léttskýjað NA-lands og áframhaldandi hlýindi. Á sunnudag (hvítasunnudagur): Útlit fyrir hæga suðlæga átt, dálitlar skúrir í öllum landshlutum og kólnandi veðri. Á mánudag (annar í hvítasunnu): Líklega hægar breytilegar áttir, milt og þurrt að kalla.
Mest lesið Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent „Býsna margt orðið grænmerkt“ Innlent Konan er fundin Innlent Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Innlent Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Innlent Fleiri fréttir Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Sjá meira