Bein útsending: Hugljúfir tónleikar með Gabríel Ólafs Stefán Árni Pálsson skrifar 15. júní 2020 15:26 Gabríel er gríðarlega efnilegur píanóleikari.
Norræna húsið stendur fyrir örtónleika með Gabríel Ólafs tónskáldi og píanóleikara mánudaginn í dag klukkan 16:00 og það í beinni útsendingu. Á tónleikunum flytur Gabríel verk af nýlegri plötu sinni í sérstakri og persónulegri útsetningu fyrir flautu, hörpu og fiðlu. Gabríel hefði átt að vera á tónleikaferðalagi um Evrópu en því var aflýst eins og svo mörgu öðru. Verkin flytja Gabríel, Ragnheiður Ingunn, Kristínu Ýr og Katie Buckley. Blair Alexander gerði myndbandið sem var tekið upp í Norræna húsinu í mars 2020. Gabríel Ólafs er tvítugt tónskáld og píanóleikari sem byrjaði að semja tónlist þegar hann var aðeins 14 ára gamall. Eftir að Derek Birkett, umboðsmaður Bjarkar, uppgötvaði hann gaf breska útgáfufyrirtækið One Little Independent út fyrstu plötu tónskáldsins, Absent Minded, í ágúst 2019. Á plötunni eru lagrænar útsetningar fyrir píanó og strengjakvartett. Platan hefur þegar fengið meiri en tíu milljón áhorf á streymisveitum. Gabríel hefur leikið um alla Evrópu og tónlist hans hefur hlotið góða dóma meðal annars hjá Complex, KEXP, London in Stereo, BBC Radio og FluxFM. Tónleikarnir sem samanstanda af þremur lögum eru 13. mínútur á lengd. Klippa: Gabríel Ólafs í Norræna húsinu
Menning Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Lífið Fleiri fréttir Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira