Tottenham vann Lundúnaslaginn Anton Ingi Leifsson skrifar 23. júní 2020 21:10 Harry Kane var á skotskónum í kvöld. vísir/getty Tottenham Hotspur vann 2-0 sigur á West Ham United í síðari leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað til að byrja með og var staðan markalaus í hálfleik þökk sé myndbandsdómgæslu en mark Heung-Min Son var dæmt af rétt fyrir hálfleik. Í þeim síðari varð Tomas Soucek fyrir því óláni að skora sjálfsmark og koma heimamönnum í Tottenham þannig yfir. Það var svo markamaskínan Harry Kane sem tryggði José Mourinho og lærisveinum hans stigin þrjú með marki á 82. mínútu. Kane hefur verið gagnrýndur fyrir að koma of þungur úr hléinu sem gert var á deildinni vegna kórónufaraldursins. Það virðist ekki hafa nein áhrif á markaskorun hans. Tottenham heldur enn í vonina um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð en liðið er með 45 stig í sjöunda sæti. Sex stigum minna en Chelsea sem er í fjórða sæti - en það er síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildinni. West Ham er hisn vegar í bullandi fallhættu en liðið er með 27 stig í 17. sæti. Jafn mörg og Bournemouth sem er í 18. sæti en á leik til góða. Enski boltinn