Liverpool Englandsmeistari eftir sigur Chelsea Anton Ingi Leifsson skrifar 25. júní 2020 21:01 Stuðningsmenn Liverpool fagna Englandsmeistaratitlinum um allan heim í kvöld. VÍSIR/GETTY Liverpool er Englandsmeistari í fótbolta í fyrsta sinn í þrjátíu ár en þetta varð ljóst í kvöld þegar Chelsea vann Manchester City, 2-1. Sjö umferðir eru eftir af deildinni og Liverpool, sem hefur aðeins tapað einum leik á tímabilinu, er með 86 stig og nú 22 stiga forskot á City þegar aðeins 21 stig er í pottinum. Leikmenn Manchester City munu því væntanlega standa heiðursvörð fyrir Liverpool-menn þegar liðin mætast í næstu umferð, í Manchester eftir viku. Sigurinn í kvöld var kærkominn fyrir Chelsea í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Liðið er með 52 stig í 4. sæti, fimm stigum á undan Manchester United og Wolves. Christian Pulisic kom Chelsea í 1-0 eftir að hafa tekið boltann af Benjamin Mendy við miðlínuna.VÍSIR/GETTY Christian Pulisic kom Chelsea í 1-0 á 36. mínútu eftir að hann vann boltann af Benjamin Mendy við miðlínu og brunaði með hann fram, einn gegn Ederson. Kevin De Bruyne jafnaði metin beint úr aukaspyrnu snemma í seinni hálfleik. Það var svo komið fram á 77. mínútu þegar Chelsea var í stórsókn sem endaði með því að Fernandinho varði skot á línu með hendi. Dómarinn sá það ekki en eftir að atvikið var skoðað á myndbandi fékk Fernandinho rautt spjald og Chelsea víti sem að Willian skoraði af öryggi úr. Enski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti