Lífið

Guðmundur í yfirheyrslu: Með feita putta á öllum puttum og elskar pasta

Stefán Árni Pálsson skrifar
sgsg

Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi mætti í yfirheyrsluna í Brennslunni á FM957 í morgun.

Þar svaraði hann allskonar skemmtilegum spurningum og kom margt skemmtilegt í ljós. Uppáhaldsmaturinn hans Guðmundar er pasta, hann ætlaði sér alltaf að verða forseti sem barn og hann má ekki koma nálægt tölvu, þá bilar hún.

Guðmundur segist vera með feita putta á öllum puttum eins og hann orðaði það. Það getur tekið hann tvær mínútur að skrifa þriggja orða sms. Hann sér eftir því að hafa ekki stundað meiri íþróttir í barnæsku. Hann er mikil gin og tonic maður og fyndnasti Íslendingurinn er Laddi að hans mati.

Hér að neðan má sjá yfirheyrsluna úr Brennslunni í morgun.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.