Lægð upp að landinu í kvöld Vésteinn Örn Pétursson skrifar 4. ágúst 2020 06:16 Veðurhorfur á landinu á hádegi í dag. Veðurstofa Íslands/Skjáskot
Í dag er spáð fremur hægum vindi og vætu í flestum landshlutum. Líkur eru á súld og þokumóðu fram eftir degi, þá einkum norðvestanlands. Hiti verður á bilinu 8 til 15 stig og reikna má með að hlýjast verði á Norðausturlandi. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Í kvöld kemur lægð upp að landinu úr suðri og fer að hvessa suðaustanlands, en þar tekur gildi gul veðurviðvörun frá og með miðnætti, aðfaranótt morgundagsins, og gildir hún til klukkan tíu á miðvikudagsmorgun. Útlit fyrir áframhaldandi austanátt með vætu víðast hvar, einkum um austanvert landið, sem snýst í sunnanátt um kvöldið á sama tíma og dregur úr úrkomu. Seinna í vikunni er meinlaust veður í kortunum. Þá verður fremur hægur vindur og rigning með köflum, en stefnir í hlýnandi og bjart veður um norðaustanvert landið næstu helgi. Veðurhorfur næstu daga, samkvæmt veðurstofu Íslands: Á miðvikudag:Austlæg átt 5-13 m/s með rigningu víðast hvar, en 13-18 m/s suðaustanlands um morguninn, og talsverð úrkoma fram eftir degi þar. Snýst í hægari suðlæga átt seinnipartinn, en hvessir af norðaustri á Vestfjörðum. Hiti 8 til 13 stig. Á fimmtudag:Suðlæg átt 3-10 m/s. Rigning og hiti 8 til 12 stig, en þurrt og bjart norðaustanlands með hita á bilinu 10 til 16 stig. Á föstudag:Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt, en heldur hvassari suðaustanátt við suðausturströndina. Rigning austantil, annars bjart með köflum og þurrt að mestu. Hiti 8 til 14 stig að deginum. Á laugardag:Sunnan og suðvestan 5-13 m/s. Rigning um vestanvert landið, annars skýjað með köflum og þurrt. Fremur milt í veðri, einkum á Austurlandi. Á sunnudag og mánudag:Útlit fyrir sunnanátt með rigningu sunnan- og vestantil, annars þurrt og bjart með köflum. Hlýnandi veður á Norðausturlandi, annars lítil breyting í hita.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira