Jóhann Berg og Jón Daði áfram í bikarnum | Fertugur framherji tryggði Rochdale annan leik gegn Newcastle Anton Ingi Leifsson skrifar 4. janúar 2020 14:30 Bruce og félagar þurfa að mæta Rochdale í annað sinn. vísir/epa Íslendingaliðin Burnley og Millwall eru komin áfram í fjórða umferð enska bikarsins eftir sigra í þriðju umferðinni í dag. Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði og spilaði fyrri hálfleikinn í 4-2 sigri Burnley á Peterborough á heimavelli í dag. Burnley var komið í 3-0 eftir 23 mínútur áður en gestirnir minnkuðu muninn. Jay Rodriguez gerði tvö mörk fyrir Burnley, Erik Pieters eitt og Jeff Hendrick eitt. Full time: Burnley 4 Peterborough Utd 2 The Clarets are in the hat for Monday's fourth round draw.— Burnley FC (@BurnleyOfficial) January 4, 2020 Jón Daði Böðvarsson spilaði allan leikinn fyrir Millwall sem vann 3-0 sigur á Newport County og er því komið áfram í 32-liða úrslitin. Newcastle lenti heldur betur í kröppum dansi gegn C-deildarliðinu Rochdale. Miguel Almiron kom úrvalsdeildarliðinu yfir á sautjándu mínútu en hinn fertugi, Aaron Wilbraham, jafnaði fyrir Rochdale ellefu mínútum fyrir leikslok. Lokatölur urðu 1-1 og þurfa því liðin að mætast á nýjan leik á heimavelli Newcastle. Youngster Luke Matheson sets up veteran Aaron Wilbraham and @officiallydale are back in the game!#EmiratesFACuppic.twitter.com/RXkxVuFJPw— The Emirates FA Cup (@EmiratesFACup) January 4, 2020 Öll úrslit dagsins: Birmingham - Blackburn 2-1 Bristol - Shrewsbury 1-1 Burnley - Peterborough 4-2 Millwall - Newport 3-0 Rochdale - Newcastle 1-1 Rotherham - Hull 2-3 Enski boltinn