Málatilbúnaði eigenda Drangavíkur gegn Hvalárvirkjun vísað frá dómi Kristján Már Unnarsson skrifar 10. janúar 2020 17:14 Séð yfir Hvalárfoss og ósa Hvalár þar sem vegurinn endar. Ófeigsfjörður í baksýn. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson
Héraðsdómur Vestfjarða hefur vísað frá dómsmáli sem meirihluti landeigenda Drangavíkur á Ströndum höfðaði vegna Hvalárvirkjunar á hendur Vesturverki ehf. og Árneshreppi. Dómurinn dæmdi kærendur jafnframt til þess að greiða Árneshreppi og Vesturverki 600 þúsund krónur hvorum í málskostnað eða samtals 1,2 milljónir króna. Landeigendur höfðuðu mál gegn Vesturverki og Árneshreppi í lok sumars á þeirri forsendu að gamalt landamerkjabréf frá árinu 1890 sýndi að hluti af vatnasviði Hvalárvirkjunar væri á þeirra eignarlandi. Þeir kröfðust þess að framkvæmdaleyfi Vesturverks á Ófeigsfjarðarheiði vegna virkjunarinnar yrði fellt úr gildi sem og deiliskipulag vegna framkvæmdanna. Hvalárfoss. Göngubrúin yfir Hvalá fyrir miðri mynd.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson. Héraðsdómur taldi hins vegar ósannað að eigendur Drangavíkur ættu umrætt land. Ekki væri hægt að miða við önnur landamerki en þau sem hingað til hefðu verið talin gilda. Af þeim sökum hafi stefnendur ekki sýnt fram á að þeir ættu lögvarða hagsmuni í málinu á grundvelli eignarréttar að svæðinu. Dómurinn taldi jafnframt að ekki hafi verið sýnt fram á að röskun verði á hagsmunum eigenda Drangavíkur sem réttlætt geti aðild þeirra að málinu. Í úrskurðinum er meðal annars bent á að fjarlægð frá framkvæmdum sé talin í kílómetrum og fyrirhugaðar framkvæmdir, sem tekist sé á um, séu óverulegar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu Vesturverks vegna málsins. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 fyrir tveimur árum um skiptar skoðanir íbúa hreppsins til virkjunarinnar:
Árneshreppur Deilur um Hvalárvirkjun Umhverfismál Vatnsaflsvirkjanir Tengdar fréttir Hvalá í Ófeigsfirði komin á kortið sem áfangastaður Áhugi fólks á að skoða umhverfi Hvalár í Ófeigsfirði á Ströndum hefur stóraukist, ef marka má þann jeppafjölda sem sést hefur aka þessa torfæru leið að undanförnu. 31. júlí 2019 16:31 Telur einfalt að hliðra til vegna steingervinga Náttúrufræðistofnun hyggst eftir helgi rannsaka fullyrðingar andstæðinga Hvalárvirkjunar um að friðaðir steingervingar séu á framkvæmdasvæði virkjunarinnar. 4. ágúst 2019 21:30 Gröfur Vesturverks nálgast átakasvæðið í Árneshreppi Vaxandi spenna er nú í Árneshreppi eftir því sem vinnuvélarnar nálgast jörðina Seljanes í vegagerð vegna Hvalárvirkjunar. Sá kostur er fyrir hendi að byggja í staðinn bryggju í Ófeigsfirði. 1. ágúst 2019 21:42 Flýtimeðferð samþykkt í máli landeigenda gegn Vesturverki og Árneshreppi Héraðsdómur hefur fallist á beiðni eigenda 70,5% óskipts lands Drangavíkur á Ströndum um flýtimeðferð í dómsmáli gegn Vesturverki og Árneshreppi. Eigendur landsins krefjast þess að framkvæmdaleyfi vegna Hvalárvirkjunar verði ógilt 12. ágúst 2019 10:38 VesturVerk segir kortið sett fram til að tefja framkvæmdir Talsmaður VesturVerks segir að kæra byggð á nýju landamerkjakorti sé sett fram til að tefja framkvæmdir við Hvalárvirkjun. Þessu hafnar teiknarinn. Málið snýst um túlkun á skjali frá 19. öld. 6. júlí 2019 09:00 Kæra framkvæmdaleyfi fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar Landeigendur meirihluta Drangavíkur í Árneshreppi á Ströndum hafa kært deiliskipulag og framkvæmdaleyfi fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (ÚUA). 24. júní 2019 12:30 Kröfu landeigenda á Seljanesi hafnað Samgönguráðuneytið hefur hafnað kröfu hluta landeigenda Seljaness í Árneshreppi um að ákvörðun Vegagerðarinnar um að fela Vesturverki veghald Ófeigsfjarðarvegar yrði felld úr gildi. 10. september 2019 22:36 Hafna öllum kröfum um stöðvun framkvæmda við Hvalárvirkjun Eigendur jarðarinnar Drangavíkur í Árneshreppi lýsa yfir miklum vonbrigðum vegna ákvörðunarinnar. 19. júlí 2019 17:30 Mest lesið Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Viðskipti innlent Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Viðskipti innlent Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Viðskipti innlent Isavia gefur strandaglópum engin grið Viðskipti innlent „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðskipti innlent Búið að greiða laun og barnabætur Viðskipti innlent Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á Atvinnulíf Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Viðskipti innlent Hvetur stjórnvöld til að veita ferðaskrifstofum lán eins og í Covid Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Sýn og Creditinfo í samstarf um Framúrskarandi fyrirtæki Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Isavia gefur strandaglópum engin grið Ásgeir og Darri til Landslaga Sahara og Olís tilnefnd til tvennra alþjóðlegra verðlauna Hvetur stjórnvöld til að veita ferðaskrifstofum lán eins og í Covid Búið að greiða laun og barnabætur Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Snaps teygir anga sína út á Hlemm „Það er svo langt síðan að við höfðum ekki trú á Play“ Arnar Þór og Unnur Lilja skipta búi Play Bændaferðir færa sig í skemmtiferðasiglingar Fallið frá kröfum um neyðarfjarskipti á hálendinu Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu Hrun í makríl og kolmunna Fall Play áfall en að einhverju leyti fyrirséð Segir ekki honum að kenna að Play hafi farið á hausinn Eðlilegt ef farið verður yfir eftirlit með flugfélögum Höggið á íslenska ferðaþjónustu ætti að vera takmarkað Þjóðarskútan sé „vel í stakk búin til að sigla milli skers og báru í úfnum sjó“ Gjaldþrotaskiptabeiðni Play tekin fyrir í héraðsdómi Atvinnuleysi 5,3 prósent í ágúst Kalla ráðherra og forstjóra Samgöngustofu fyrir samgöngunefnd Hækkun flugfargjalda muni skila sér í meiri verðbólgu Leik lokið hjá Play „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Sjá meira
Hvalá í Ófeigsfirði komin á kortið sem áfangastaður Áhugi fólks á að skoða umhverfi Hvalár í Ófeigsfirði á Ströndum hefur stóraukist, ef marka má þann jeppafjölda sem sést hefur aka þessa torfæru leið að undanförnu. 31. júlí 2019 16:31
Telur einfalt að hliðra til vegna steingervinga Náttúrufræðistofnun hyggst eftir helgi rannsaka fullyrðingar andstæðinga Hvalárvirkjunar um að friðaðir steingervingar séu á framkvæmdasvæði virkjunarinnar. 4. ágúst 2019 21:30
Gröfur Vesturverks nálgast átakasvæðið í Árneshreppi Vaxandi spenna er nú í Árneshreppi eftir því sem vinnuvélarnar nálgast jörðina Seljanes í vegagerð vegna Hvalárvirkjunar. Sá kostur er fyrir hendi að byggja í staðinn bryggju í Ófeigsfirði. 1. ágúst 2019 21:42
Flýtimeðferð samþykkt í máli landeigenda gegn Vesturverki og Árneshreppi Héraðsdómur hefur fallist á beiðni eigenda 70,5% óskipts lands Drangavíkur á Ströndum um flýtimeðferð í dómsmáli gegn Vesturverki og Árneshreppi. Eigendur landsins krefjast þess að framkvæmdaleyfi vegna Hvalárvirkjunar verði ógilt 12. ágúst 2019 10:38
VesturVerk segir kortið sett fram til að tefja framkvæmdir Talsmaður VesturVerks segir að kæra byggð á nýju landamerkjakorti sé sett fram til að tefja framkvæmdir við Hvalárvirkjun. Þessu hafnar teiknarinn. Málið snýst um túlkun á skjali frá 19. öld. 6. júlí 2019 09:00
Kæra framkvæmdaleyfi fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar Landeigendur meirihluta Drangavíkur í Árneshreppi á Ströndum hafa kært deiliskipulag og framkvæmdaleyfi fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (ÚUA). 24. júní 2019 12:30
Kröfu landeigenda á Seljanesi hafnað Samgönguráðuneytið hefur hafnað kröfu hluta landeigenda Seljaness í Árneshreppi um að ákvörðun Vegagerðarinnar um að fela Vesturverki veghald Ófeigsfjarðarvegar yrði felld úr gildi. 10. september 2019 22:36
Hafna öllum kröfum um stöðvun framkvæmda við Hvalárvirkjun Eigendur jarðarinnar Drangavíkur í Árneshreppi lýsa yfir miklum vonbrigðum vegna ákvörðunarinnar. 19. júlí 2019 17:30