Ótrúleg dramatík en West Brom og Forest skildu jöfn Sindri Sverrisson skrifar 15. febrúar 2020 15:15 West Brom var grátlega nálægt sigri gegn Nottingham Forest í toppslag í ensku B-deildinni í fótbolta í hádeginu en lokatölur urðu 2-2. Mörkin og dramatíkina í lok leiks má sjá hér neðst í fréttinni. West Brom komst tvívegis yfir í leiknum en Matty Cash náði, nánast upp úr þurru, að jafna metin á 90. mínútu með laglegu marki. Þá var hins vegar enn tími fyrir dramatík því Callum Robinson virtist vera að skora sigurmark fyrir West Brom en boltinn fór í samherja hans Kyle Bartley sem lá við marklínuna og rangstaða var því dæmd. West Brom er því með 63 stig á toppi deildarinnar en næstu lið eru Leeds og Fulham með 56 stig og nú leik til góða. Forest er svo í 4. sæti með 55 stig og getur misst Brentford, Preston og Bristol City upp fyrir sig í dag. Klippa: Dramatík í toppslag í ensku B-deildinni Enski boltinn