Þungbúin ský yfir suðvesturhorninu en mun létta til Atli Ísleifsson skrifar 20. ágúst 2020 07:08 Bjart er norðan- og vestantil um hádegisbil samkvæmt spákorti Veðurstofunnar. Veðurstofan
Byrjun dagsins er ekki mjög björt á suðvesturhorni landsins með þungbúnum skýjum, en það léttir til, annað en í gær. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Eftir hádegi fari skýin og sólin láti sjá sig, líkt og í fleiri landshlutum. „Það verður norðaustan átt í dag, víða 5-10 m/s en 10-15 m/s í vindstrengjum við suðausturströndina með vindhviðum um 25 m/s en það getur verið varasamt fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Hiti 10 til 17 stig, en nokkuð svalt austanlands, lengst af skýjað og hiti 5 til 9 stig á þeim slóðum. Á morgun má gera ráð fyrir áframhaldandi norðaustanátt, áfram strekkingur suðaustanlands og einnig norðvestantil á landinu, annars hægari vindur og fer að lægja á laugardag. Víða léttskýjað en þungbúið um landið norðaustanvert, og svipaðar hitatölur,“ segir á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustan og norðan 5-15 m/s, hvassast í vindstrengjum á Vesturlandi og með austurströndinni. Bjart með köflum, en dálítil rigning suðaustantil. Þykknar upp um norðanvert landið síðdegis. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast sunnanlands. Á laugardag: Norðlæg átt 3-8, en 8-13 austast á landinu. Víða léttskýjað og hiti 11 til 17 stig yfir daginn. Skýjað norðaustan- og austanlands, þurrt að kalla og hiti 6 til 11 stig. Á sunnudag: Hæg breytileg átt eða hafgola. Víða þurrt og bjart veður og hiti 8 til 17 stig, hlýjast á vestanverðu landinu. Á mánudag og þriðjudag: Hæg breytileg átt eða hafgola og bjart með köflum. Hiti víða 10 til 16 stig yfir daginn. Á miðvikudag: Útlit fyrir hæga austanátt og víða léttskýjað. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Takmarka fjölda nemenda utan EES Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Erlent Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent Fleiri fréttir Djúp lægð grefur um sig Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Tíðindalítið veður en bætir í vind í kvöld Dálítil snjókoma norðantil en þurrt sunnan heiða Lægðin á undanhaldi Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Sjá meira