Norðaustannátt í dag með varasömum vindstrengjum austantil Atli Ísleifsson skrifar 21. ágúst 2020 07:03 Það verður bjart víðast hvar á landinu seinni partinn. Veðurstofan
Landsmenn mega búast við norðaustanátt í dag, víða 5 til 10 metrum á sekúndu en nokkru meira í vindstrengjum á Austfjörðum og Suðausturlandi þar sem vindur getur tekið í ökutæki sem eru viðkvæmust fyrir vindi. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að léttskýjað verði norðan- og vestantil á landinu, en skýjað með köflum og úrkomulítið suðaustantil. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast sunnanlands. „Þykknar upp á Norður- og Austurlandi í kvöld og kólnar heldur með dálítlli vætu þar í nótt, annars þurrt. Fremur hæg norðlæg átt á morgun, en strekkingur austast á landinu fram á kvöld. Víða bjartviðri, en síðdegisskúrir á Suðausturlandi, og hiti 11 til 17 stig að deginum. Lítilsháttar rigning norðaustantil og svalara á þeim slóðum, hiti 5 til 10 stig,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðlæg átt 3-8 m/s, en 8-13 austast á landinu fram á kvöld. Víða léttskýjað, en lítitilsháttar rigning um landið norðaustanvert og stöku síðdegisskúrir suðausturanlands. Hiti frá 6 stigum í innsveitum á Norðausturlandi, upp í 17 stig suðvestantil. Á sunnudag og mánudag: Hæg breytileg átt eða hafgola. Bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 8 til 16 stig yfir daginn, svalast norðaustantil. Á þriðjudag og miðvikudag: Suðvestlæg átt 3-8. Skýjað með köflum á vestanverðu landinu, en yfirleitt léttskýjað í öðrum landshlutum. Hiti víða 11 til 17 stig að deginum. Á fimmtudag: Útlit fyrir austlæga átt. Skýjað að mestu um sunnanvert landið og lítilháttar væta, en víða bjartviðri norðantil. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Innlent Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Innlent Konan er fundin Innlent Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Innlent Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Innlent Búið að boða til nýs fundar Innlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Innlent Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Erlent Fleiri fréttir Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Sjá meira