COVID-19: Tæplega 28 milljónir til að draga úr útbreiðslu í Afríku og Miðausturlöndum Heimsljós kynnir 11. mars 2020 16:00 Rauði krossinn
Rauði krossinn á Íslandi ákvað í dag, með rausnarlegum stuðningi utanríkisráðuneytisins, að veita tæpum 28 milljónum til aðgerða Alþjóða Rauða krossins í baráttunni við COVID-19 vírusinn í Afríku og Miðausturlöndum. „Það sem skiptir máli er að ná að hægja á og koma í veg fyrir frekari útbreiðslu á heimsvísu,“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi. „Á Íslandi hafa almannavarnir og heilbrigðisyfirvöld stigið mjög ákveðið fram og unnið gott starf svo eftir því er tekið annars staðar. En á sama tíma og við gerum okkar besta hér á landi verðum við að rétta systrum okkar og bræðrum annars staðar hjálparhönd svo heimurinn geti kveðið niður COVID-19. Með samhentu átaki og með stuðningi utanríkisráðuneytisins og Mannvina Rauða krossins leggjum við okkar af mörkum,“ segir Kristín. Aðgerðir Alþjóða Rauða krossins miða að því að draga úr áhrifum COVID-19 faraldursins á heilsufar og velferð, ásamt því að draga úr þeim neikvæðu félagslegu áhrifum sem faraldurinn getur haft á einstaklinga og samfélög.Í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld í hverju landi einblínir Rauða kross hreyfingin á fjölþættar aðgerðir sem draga úr útbreiðslu og efla viðbrögð stjórnvalda og almennings þar sem staðfest smit hafa komið upp. Rauði krossinn.Kristín segir að aðgerðir Rauða krossins og Rauða hálfmánans hafi mikið að segja við að ná tökum á útbreiðslu COVID-19. Hér á Íslandi gegni Rauði krossinn veigamiklu hlutverki og sömu sögu megi segja um fjölmörg önnur Rauða kross félög sem hafa jafnvel enn veigameira hlutverki að gegna, ekki síst í allra fátækustu ríkjunum. Þar sé almenn heilbrigðisþjónusta af mjög skornum skammti og innviðir almennt veikir. Kristín bendir á að hver og einn hafi hlutverki að gegna við að hefta útbreiðslu sem felist ekki í síst í því að huga að eigin öryggi með því að fylgja ráðleggingum heilbrigðisyfirvalda, svo sem með auknum og vönduðum handþvotti. „Á tímum sem þessum eru ýmsar sögusagnir og rangar upplýsingar sem fara um eins og eldur í sinu. Hluti af aðgerðum Rauða krossins hérlendis og erlendis er að kveða slíkar sögusagnir í kútinn sem oft stuðla að fordómum gagnvart tilteknum hópum samfélaga. Hér á Íslandi sem og annars staðar skiptir höfuðmáli að almenningur sé meðvitaður og taki virkan þátt i aðgerðum yfirvalda til að sporna við útbreiðslu. Margir eru kvíðnir og jafnvel óttaslegnir en með samstilltu átaki, markvissum aðgerðum og sálrænum stuðningi má draga úr áhyggjum og virkja fólk í baráttunni gegn veirunni,” segir hún. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Segist saklaus Innlent Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Veður „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent