Djúp lægð stjórnar veðrinu næstu daga Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. október 2020 07:14 Það er spáð austlægri átt og að það verði nokkuð hvasst, einkum syðst á landinu þar sem slær í storm. Vísir/Vilhelm
Djúp lægð sem er suðvestur af landinu stjórnar veðrinu hér næstu daga að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Það er spáð austlægri átt og að það verði nokkuð hvasst, einkum syðst á landinu þar sem slær í storm., einkum syðst á landinu þar sem slær í storm. Þá verða stöku él eða skúrir um landið austanvert í dag en annars þurrt. Spáð er eins til sex stiga hita en í kringum frostmark á Norðaustur- og Austurlandi. „Léttskýjað sunnan- og vestanlands á morgun, en dálítil slydda eða rigning í öðrum landshlutum og það hlýnar aðeins. Rigning víða um land á fimmtudag, mest á Suður- og Austurlandi og seinni partinn eða um kvöldið snýst hann í hægari suðaustanátt,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu: Austan- og norðaustanátt, 18-23 m/s syðst og víða 10-18 annars staðar, en hægari á Norðaustur- og Austurlandi fram á kvöld. Bjartviðri vestanlands, en stöku él eða skúrir um landið austanvert. Hiti 1 til 6 stig að deginum, en í kringum frostmark norðaustantil á landinu. Léttskýjað sunnan- og vestanlands á morgun, annars slydda eða rigning með köflum, einkum á Austurlandi. Hiti 1 til 8 stig, mildast við suðurströndina. Á miðvikudag: Austan og norðaustan 10-18 m/s, en 18-23 syðst. Víða bjartviðri á Suður- og Vesturlandi, annars slydda eða rigning með köflum, einkum A-lands. Hiti 1 til 8 stig, mildast við suðurströndina. Á fimmtudag: Hvöss austanátt og dálítil væta, en talsverð rigning á Suðaustur- og Austurlandi. Hægari suðaustanátt seinni partinn. Hiti 2 til 9 stig, mildast syðst. Á föstudag: Suðaustanátt og rigning með köflum, en yfirleitt þurrt norðantil á landinu. Hiti 2 til 7 stig. Á laugardag: Suðlæg átt með rigningu sunnan- og vestanlands, en bjartviðri norðaustantil. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Fleiri fréttir Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Sjá meira