Suðlæg átt og víða él Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 11. nóvember 2020 08:33 Það verður heldur kalt víða um land í dag eins og sést á þessu spákorti Veðurstofunnar sem gildir fyrir klukkan 12 í dag. Veðurstofa Íslands
Því er spáð að það dragi úr vindi og ofankomu á norðaustanverðu landinu með morgninum. Þá verður suðlæg átt, víða fimm til tíu metrar á sekúndu og él en það á að rofa til á Norðurlandi. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir jafnframt að hiti verði núll til fimm stig að deginum en í kringum frostmark fyrir norðan. Á morgun er síðan spáð allhvassri eða hvassri austanátt og rigningu með köflum. Um tíma má búast við talsverðri rigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum en hægari vindur og þurrt um landið norðanvert fram eftir degi. Það lægir annað kvöld og dregur úr úrkomu sunnanlands. Þá hlýnar heldur, spáð er tveggja til átta stiga hita síðdegis. Veðurhorfur á landinu: Vestan 10-18 m/s og slydda eða snjókoma um landið NA-vert, en lægir og styttir upp með morgninum. Suðlæg átt 5-10 og él í dag, en rofar til N-lands. Hiti 0 til 5 stig að deginum, en í kringum frostmark fyrir norðan. Austan 13-20 og rigning með köflum á morgun, og talsverð rigning SA-til, en hægari og þurrt um landið N-vert fram eftir degi. Lægir víða annað kvöld og dregur úr úrkomu S-lands. Hlýnandi, hiti 2 til 8 stig síðdegis. Á fimmtudag: Austan 13-20 m/s og rigning, og talsverð rigning SA-til, en hægari og þurrt um landið N-vert framan af degi. Lægir víða um kvöldið og dregur úr úrkomu S-lands. Hiti 1 til 7 stig að deginum, mildast syðst. Á föstudag: Norðan og norðaustan 5-13 m/s. Dálitlar skúrir eða él N-til, og rigning SA- og A-lands, annars þurrt að kalla. Hiti 0 til 6 stig. Á laugardag: Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en dálítil él við N-ströndina. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins. Á sunnudag: Norðaustlæg eða breytileg átt og slydda eða snjókoma A-lands, annars úrkomulítið. Hiti um og undir frostmarki.
Veður Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira