Segir bless við kæruleysið í nýju myndbandi Ritstjórn Albumm skrifar 27. nóvember 2020 12:00 Volcano Victims. Gaui Emil tónlistarmaður. Volcano Victims gaf út nýtt lag og myndband á dögunum. í myndbandinu segir hann bless við kæruleysið og stefnuleysið. Volcano Victims er sólóverkefni Gauja Emils sem hefur búið í Berlín í mörg ár. Lágt verðlag og afslappandi andrúmsloft hefur leitt til þess að Gaui hefur ekkert verið að flýta sér í að fullorðnast en nú finnst honum tími til kominn að segja bless við kæruleysið og stefnuleysið, eða að minnsta kosti að gera heiðarlega tilraun til þess eins og sjá má í myndbandinu. watch on YouTube Myndbandið var tekið upp í Berlin snemma í haust og þar bregður fyrir skrautlegum karakterum sem hafa truflandi áhrif á Gauja sem reyna að draga hann aftur í gamla lífsstílinn. Þetta er tíunda lagið sem Gaui aka Volcano Victims gefur út á árinu og má nálgast þau á Spotify og Bandcamp síðu sveitarinnar. Öll lögin eru samin og útsett af Gaua Emils og flest lögin, þar með talið Canicular Years, eru sungin af Hönnu Magdalenu. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Þingmaður selur húsið Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Enginn Óskar til Íslands 2026 Bíó og sjónvarp Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Lífið Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Þingmaður selur húsið Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Enginn Óskar til Íslands 2026 Bíó og sjónvarp Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Lífið Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið