Tónlist

Thom Yorke frumflutti nýklárað lag úr kjallaranum heima

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Thom Yorke í kjallaranum heima hjá sér í gær.
Thom Yorke í kjallaranum heima hjá sér í gær. Mynd/NBC

Svo virðist sem að breski söngvarinn Thom Yorke, forsprakki hljómsveitarinnar Radiohead, hafi ekki setið auðum höndum á meðan kórónuveiran gengur yfir heimsbyggðina. Hann frumflutti glænýtt og nýklárað lag í spjallþætti Jimmy Fallon í gærkvöldi.

Áður en þátturinn fór í loftið tísti Thom Yorke mynd af blaði þar sem sjá mátti texta lagsins, sem ber nafnið Plasticine Figures, og útsetningu þess. Þar má einnig sjá hvernig búið er að krota yfir sumar línur, aðrar komnar í staðinn auk þess sem að búið er að skrifa hvaða hljóma eigi að spila.

Hið angurværa lag hefur aldrei heyrst áður opinberlega en í gær mátti sjá Thom Yorke flytja lagið einn á píanói í kjallaranum heima hjá sér, en hann og aðrir meðlimir Radiohead hafa haft hægt um sig á meðan faraldurinn hefur gengið yfir ef frá er talinn Ed O'Brien, gítarleikari hljómsveitarinnar sem gaf út sína fyrstu sólóplötu á dögunum.

Þó hafa hljómsveitarmeðlimir glatt aðdáendur sína með því að endursýna eldri tónleika á YouTube-síðu hljómsveitarinnar. Klukkan níu í kvöld verða sýndir tónleikar hljómsveitarinnar á Coachella-tónleikahátíðinni frá árinu 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.