Tottenham ekki í vandræðum með botnliðið Arnar Geir Halldórsson skrifar 17. janúar 2021 15:46 Tveir af markaskorurum dagsins. vísir/Getty Tottenham átti ekki í teljandi vandræðum með botnlið ensku úrvalsdeildarinnar þegar Sheffield United fékk lærisveina Jose Mourinho í heimsókn á Bramall Lane í dag. Leikurinn var aðeins fimm mínútna gamall þegar Serge Aurier skallaði hornspyrnu Son Heung Min í netið. Harry Kane tvöfaldaði forystu gestanna skömmu fyrir leikhlé þar sem leikmenn Tottenham voru fljótir að refsa Oliver Norwood fyrir slæm mistök í uppspili Sheffield manna. Heimamenn gáfust ekki upp og náðu að minnka muninn í 1-2 á 59.mínútu þegar David McGoldrick skoraði. Tottenham voru fljótir að svara því Tanguy Ndombele gerði út um allar vonir heimamanna á 62.mínútu þegar hann skoraði eftir stoðsendingu Steven Bergwijn. Lokatölur 1-3 fyrir Tottenham sem lyftir sér upp í fjórða sæti deildarinnar, með þremur stigum minna en topplið Manchester United. Sheffield United eftir sem áður á botni deildarinnar. Enski boltinn
Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“ Körfubolti
Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“ Körfubolti