Burnley batt enda á ótrúlegt gengi Liverpool á heimavelli Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. janúar 2021 22:00 Ashley Barnes var hetja Burnley í kvöld. Jon Super/Getty Images Burnley vann Englandsmeistara Liverpool 1-0 í kvöld er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni. Þar með varð Burnley fyrsta liðið til að leggja Liverpool af velli á Anfield síðan 23. apríl árið 2017. Jóhann Berg Guðmundsson spilaði síðustu 25 mínútur leiksins. Alls hafði liðið leiki 76 leiki án taps á heimavelli fyrir leik kvöldsins. Nú hefur það ekki unnið í síðustu fimm leikjum sínum í deildinni og ekki skorað í síðustu fjórum. Liverpool s last league loss at Anfield: April 23, 2017A 68-game unbeaten streak comes to an end pic.twitter.com/1puSC6LiPt— B/R Football (@brfootball) January 21, 2021 Liverpool hefur gengið skelfilega það sem af er ári en var búist við því að Englandsmeistararnir myndu sýna klærnar í kvöld en allt kom fyrir ekki. Leikurinn var einkar hægur og í raun leiðinlegur frá upphafi til enda. Burnley lá til baka of freistaði þess að sækja hratt. Leikplan þeirra virkaði en eina alvöru færi Liverpool í fyrri hálfleik kom þegar Divock Origi slapp í gegn eftir skelfilega sendingu Ben Mee til baka á markvörð sinn, Nick Pope. Origi skaut í samskeytin og Pope greip í kjölfarið boltann. Staðan því markalaus í hálfleik. Síðari hálfleikur var litlu skárri og var ekkert sem benti til þess að Liverpool myndi skora sitt fyrsta mark síðan það gerði 1-1 jafntefli gegn West Bromwich Albion þann 27. desember. Það var svo á 83. mínútu sem Ashley Barnes fékk vítaspyrnu eftir að Alisson, markvörður Liverpool, tók hann niður innan vítateigs. Ekki var snertingin mikil en Mike Dean dómari benti á punktinn og myndbandsdómgæslan staðfesti dóm hans. 100 career goals for Barnesy and what a time to get it! #LIVBUR | #UTC pic.twitter.com/CGQoSCiRXK— Burnley FC (@BurnleyOfficial) January 21, 2021 Barnes fór sjálfur á punktinn og þrumaði knettinum í netið. Hans 100. mark á ferlinum staðreynd og Burnley komið 1-0 yfir. Englandsmeistararnir sóttu og sóttu það sem eftir lifði leiks en þeim tókst ekki að finna glufur á þéttum varnarmúr gestanna og fyrsta tap Liverpool í tæp fjögur ár niðurstaðan. Liverpool er nú í 4. sæti með 34 stig, sex stigum minna en topplið Manchester United þegar enska úrvalsdeildin er hálfnið. Burnley er í 16. sæti með 19 stig. Enski boltinn