Albumm

Með skrattann á öxlinni

Ritstjórn Albumm skrifar
Pálmi Hjalta tónlistarmaður.
Pálmi Hjalta tónlistarmaður.

Tónlistarmaðurinn Pálmi Hjalta gaf nýverið út lagið Lostasukk sem er drífandi akústískt lag með umlykjandi rokkblæ.

Textinn segir frá skrattanum á öxlinni sem syngur í eigin persónu. Með ódáð og ósvífni reynir hann að draga niður þeim árangri sem náðst hefur og minnir á að það er ætíð stutt í svartholið aftur. Lagið var tekið upp í Hljóðverk undir stjórn Einar Vilbergs í október.

Pálmi stefnir hátt uppá við og er í vinnslu á sinni fyrstu breiðskífu sem von er á í lok 2021.

Hægt er að fylgjast með Pálma Hjalta á Facebook og Instagram.


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.