Gylfi og félagar lágu fyrir nýliðunum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Hetja Fulham í kvöld hér fyrir miðju.
Hetja Fulham í kvöld hér fyrir miðju. vísir/Getty

Everton beið lægri hlut fyrir nýliðum Fulham í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Fyrri hálfleikur var markalaus en gestirnir létu til sín taka strax í upphafi síðari hálfleiks.

Josh Maja, sóknarmaður að láni hjá Fulham frá Bordeaux, kom Fulham í forystu á 48.mínútu. Hann var svo aftur á ferðinni á 65.mínútu og tryggði liði sínu þar með 0-2 sigur.

Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Everton.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira