Mun meira bókað en í fyrra í laxveiðiánum Karl Lúðvíksson skrifar 16. febrúar 2021 09:04 Það er mikil tilhlökkun eftir komandi veiðisumri eins og alltaf. Síðasta sumar gátu Íslenskir veiðimenn stokkið á lausa daga í sumum laxveiðiánum sem voru settir í endursölu þegar erlendir veiðimenn afbókuðu með litlum fyrirvara.
Síðasta sumar gátu Íslenskir veiðimenn stokkið á lausa daga í sumum laxveiðiánum sem voru settir í endursölu þegar erlendir veiðimenn afbókuðu með litlum fyrirvara. Þetta er ekki staðan á þessu ári sýnist okkur en í stuttri athugun á lasum dögum í nokkrum vinsælum ám virðist vera mun meiri eftirspurn erlendis frá heldur en í fyrra. Það er greinilegt að væntingar erlendra veiðimanna fyrir endalokum Covid séu miklar og hjá flestum veiðileyfasölum virðist vera góður viðsnúningur á erlendum bókunum. Að sama skapi virðast Íslenskir veiðimenn líka vera farnir að bóka meira en þeir gerðu í fyrra og aðsókn í árnar þar sem veiðimenn hugsa um sig sjálfir búin að vera það mikil að það er farið að vera erfitt að finna lausa daga í tveggja til þriggja stanga á sem er ekki of dýr, með góðri veiðivon og góðu húsi. Væntingarstuðulinn fyrir komandi sumri er því nokkuð góður og við sem og aðrir veiðimenn getum varla beðið eftir því að þenja stangirnar við bakkann aftur.
Stangveiði Mest lesið Miðá í Dölum til SVFR Veiði 11 og 12 punda laxar í opnun Hvannadalsár Veiði 10 laxar í Grímsá fyrsta daginn Veiði Rjúpnastofninn í niðursveiflu víða um landið Veiði Laxárdalurinn frábær áskorun í stóra urriða Veiði Fréttir úr Ytri Rangá Veiði Mjög erfitt í Norðurá Veiði Norðurá í Skagafirði í sölu hjá SVAK Veiði Brúará fyrir landi Sels til SVFR Veiði Risalax úr Aðaldalnum og fleiri stórir hængar Veiði