„Ég fer svolítið út fyrir boxið og eyði þessu boxi bara,“ segir Eiður meðal annars í nýjasta þættinum af Spjallið með Góðvild. Hann segist ekki vera eins og flestir unglingar heldur ótrúlega sérstakur drengur. Hann fæddist með CP notar mikið húmor í sinni fötlunarfræðslu og gerir óspart grín að sjálfum sér.
„Við þurfum að leggja mikla áherslu á fötlunarfræði í samfélaginu. Ég er búin að vera að halda fötlunarfræðslu fyrir skóla, frístund og fullt af fyrirtækjum og stofnunum sem að vinna með börnum. Ég hef tekið eftir því að það er rosalegur áhugi fyrir því að fá þessa fræðslu, fá að sjá hvernig ég sem fatlað barn upplifi samfélagið.“
Eiður segir að hann leggi mikla áherslu á að skapa þannig aðstæður að yngri kynslóðir fái að taka þátt í samfélaginu til fulls. Hluti af því markmiði er fræðsla, sérstaklega fyrir börn og ungmenni.
Heppinn að vera með CP
Eiður er nemandi við Menntaskólann í Reykjavík, situr í stjórn CP félagsins og er auk þess stjórnarmaður í Öryrkjabandalagi Íslands. Hann segir að það viti ekki allir af því að hægt er að fá inn fötlunarfræðslu frá einstaklingum eins og honum sjálfum, einhverjum sem þekkir málaflokkinn svona vel í gegnum eigin reynslu.
„Það er mikilvægt að fá inn fötlunarfræðara eins og mig sem veit nákvæmlega hvernig það er að vera fatlað barn í þessu samfélagi, en ekki bara einhvern svona fræðimann sem las það í bók.“
Eiður segir að samfélagið hér á landi einkennist mikið af þekkingarleysi. Að hans mati er Ísland langt komið og vel þróað samfélag, nema hvað varðar fatlanir. Sjálfur hefur hann einstaklega jákvætt viðhorf gagnvart eigin fötlun.
„Mér finnst ég svo heppinn að vera með CP, því ef ég væri ekki með CP þá hefði ég kannski ekki kynnst þessu æðislega fólki sem ég þekki í dag eða tekið þátt í því frábæra starfi sem ég er að taka þátt í.“
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Þar ræðir hann einnig um félagslífið, viðbrögð fólks þegar það heyrir að hann er með CP og einnig mikilvægi þess að bæta aðgengi fyrir fatlaða einstaklinga.
Þættirnir Spjallið með Góðvild eru sýndir á Vísi Sjónvarp en einnig er hægt að hlusta á flestum hlaðvarpsstöðvum.
Verkefnið er afurð margra ára samstarfs Sigurðar Hólmars Jóhannessonar framkvæmdastjóra Góðvildar og Ágústu Fanneyjar Snorradóttur kvikmyndagerðarkonu og eiganda Mission Framleiðslu. Þáttastjórnendur eru Sigurður Hólmar Jóhannesson, Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir og Sigga Heimis.
Þættirnir eru nýr vettvangur til að koma málefnum langveikra og fatlaðra barna á framfæri og auka í leiðinni sýnileika fyrir mikilvæg málefni. Hægt er að hafa samband við Sigurð og Ágústu Fanney vegna þáttanna í gegnum vefsíðuna godvild.is eða samfélagsmiðla félagsins. Með því að styrkja Góðvild þá ertu að styðja við langveik og fötluð börn á Íslandi. Styrktarreikningur 0301-26-660117, kennitala 6601172020.