Lífið

„Það á einhver eftir að ráðast á mig þarna úti“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Patrekur Jaime hitti föðurfjölskyldu sína í Síle á síðasta ári.
Patrekur Jaime hitti föðurfjölskyldu sína í Síle á síðasta ári. vísir/vilhelm

Patrekur Jaime hefur slegið í gegn í raunveruleikaþáttunum Æði á Stöð2+ en á dögunum lauk 2. seríu af þáttunum.

Patrekur er gestur vikunnar í Einkalífinu. Undir lok fyrstu þáttaraðarinnar af Æði fór Patrekur út til Síle til að hitta föður sinn og föður fjölskylduna.

Hann var stressaður fyrir ferðinni.

„Ég var stressaður en á sama tíma geðveikt spenntur. En ferðin gekk sjúklega vel og miklu betur en ég bjóst við. Þetta var bara æðislegt og ég elska Sílé,“ segir Patrekur og heldur áfram.

„Ég hitti flestalla. Ég hitti pabba, ömmu, öll systkini pabba og öll frændsystkinin mín. Ég hélt að þetta yrði kannski meira tilfinningaþrungið en þetta var bara svo eðlilegt og allir tóku svo vel á móti mér.“

Hann segist hafa verið í samskiptum við pabba sin í mörg ár og einnig töluvert ömmu sína og afa en þau tala öll bara spænsku og því geta samskiptin verið erfið.

„Ég tala varla spænsku og ég var mjög mikið að nota Google Translate,“ segir Patti en eins og áður segir var hann stressaður fyrir ferðinni.

„Ég var sko með mjög langar neglur, og ég er samkynhneigður að fara í land sem ég hafði ekki hugmynd um. Ég hugsaði að það á einhver eftir að ráðast á mig þarna úti. En svo var þetta land miklu opnara fyrir þessu en ég hélt og ég fór meira að segja í neglur þarna úti og allt. Það var enginn að pæla í því.“

Patti ræðir ferð sína til Síle þegar um 3 mínútur eru liðnar af þættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.