Lífið

„Eruð þið bara á einhverju stefnumóti hérna?“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hjálmar Örn skar sig þegar hann tók til fyrsta hráefnið í bakstri þáttarins. Í kjölfarið var skipt um hnífa á borðum keppenda.
Hjálmar Örn skar sig þegar hann tók til fyrsta hráefnið í bakstri þáttarins. Í kjölfarið var skipt um hnífa á borðum keppenda. Blindur bakstur

Auðunn Blöndal og Hjálmar Örn kepptu í öðrum þætti af Blindum Bakstri sem sýndur var um helgina. „Ég er að keppa við þig, þessi var helvíti góður. Ég er ekki að fara að hjálpa þér,“ sagði Auðunn þegar Hjálmar spurði hvernig hann ætti að kveikja á vigtinni.

Það er ekki hægt að segja að Hjálmar og Auðunn séu reynsluboltar þegar kemur að bakstri svo þeir áttu um tíma erfitt með að fylgja þáttastjórnandanum eftir.

Þegar leið á baksturinn hafði Hjálmar náð lengra í bakstrinum og þegar Auðunn áttaði sig á því sagði hann:

„Heyrðu eruð þið bara á einhverju stefnumóti hérna? Má ég vera með?“

Í þáttunum fá keppendur hvorki að vita hvað þau eiga að baka né hvað uppskriftin inniheldur, þau þurfa algjörlega að fylgja leiðbeiningum Evu í blindni.

Áskorunin byrjaði ekki vel í þessum öðrum þætti af baksturskeppninni því Hjálmar skar sig strax í byrjun svo gera þurfti stutt hlé á bakstrinum. Þegar haldið var áfram voru þeir félagar í stökustu vandræðum með að sigta hveiti eins og sjá má í meðfylgjandi broti.

Klippa: Blindur bakstur - Skipt yfir í barnahnífa eftir slys í eldhúsinu

Í síðustu viku birtum við hér á Vísi brot úr fyrsta þættinum, þar sem Júlíana Sara og Tobba Marínós tóku hláturskast þegar kökurnar voru afhjúpaðar í lok þáttar. Um níutíu þúsund lesendur Vísis hafa horft á það myndband þegar þetta er skrifað og hefur klippan einnig vakið athygli fyrir utan landsteinana, eins og hjá norska miðlinum Dagbladet

Blindur bakstur eru á dagskrá á laugardagskvöldum á Stöð 2.


Tengdar fréttir

Fengu hláturskast þegar kökurnar voru afhjúpaðar

Fyrsti þátturinn af Blindur Bakstur var sýndur um helgina á Stöð 2 en um er að ræða nýja keppni í kökubakstri. Þáttastjórnandinn Eva Laufey Kjaran fékk þær Tobbu Marínós og Júlíönnu Söru til þess að baka „red velvet“ köku og var útkoman virkilega skemmtileg.

Fyrsta íslenska baksturskeppnin fer í loftið á Stöð 2

„Við höfum verið með hugmynd að kökuþætti í langan tíma og löngu tímabært að fá íslenska kökukeppni í loftið. Það eru svo margir skemmtilegir baksturs- og kökuþættir erlendis og því fannst mér alveg tilvalið að fara af stað með þetta hér á landi,“ segir Eva Laufey í samtali við Vísi.

Tannlaus Eva Laufey grætur úr hlátri: „Ég kem bara inn til að laga tennurnar“

„Nú er Instagram aðeins að blekkja. Ég er núna búin að vera að setja inn myndir af tökunum, ofboðsleg skvís, ofboðsleg skvís!“ segir dagskrágerðarkonan Eva Laufey Kjaran í nýjust færslu sinni á Instagram. Eva situr við spegil, uppstríluð og fín þar sem hún er að gera sig tilbúna fyrir tökur á nýjasta þætti sínum Blindur Bakstur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.