Lífið

Ótrúlegar tilviljanir í lífi Halldóru Mogensen

Stefán Árni Pálsson skrifar
Halldóra Mogensen hefur upplifað hluti sem mjög fáir hafa gert. 
Halldóra Mogensen hefur upplifað hluti sem mjög fáir hafa gert.  Vísir/Vilhelm

Halldóra Mogensen starfar í dag sem þingmaður fyrir Pírata og gat aldrei séð fyrir sér að vinna á þeim vettvangi á sínum tíma.

Lífshlaup hennar hefur verið erfitt á köflum en á sama tíma einnig mjög spennandi og hefur Halldóra upplifað ótrúlegustu hluti.

Sem barn flutti hún mikið og upplifði oft á tíðum algjört rótleysi. Hún var lögð í einelti í grunnskóla, upplifði kvíða og var almennt mjög lítil í sér. Hún var vinafá og upplifði brotna sjálfsmynd og reyndi mikið fá fólk til að taka sig í sátt. Halldóra er alin upp af einstæðri móður.

Halldóra er gestur vikunnar í Einkalífinu. Líf Halldóru hefur aftur á mótið litast af lygilegum tilviljunum og hefur hún gert hluti sem mjög fáir hafa endurleikið. Þetta ræðir hún í þættinum þegar 29 mínútur eru liðnar af þættinum.

Hér að neðan má lesa um nokkra hluti sem hún hefur upplifað en í þættinum eru fleiri sögur og þær eru sumar með hreinum ólíkindum:

Fór á Óskarinn 2009 og segir lygilega sögu hvernig hún endaði þar. 

Söng á sviði með Annie Lennox, Peter Gabriel, Robert Plant og Slash. 

Á mynd af sér með Nelson Mandela

Bjó við hliðina á Dick Cheney árið 2011

Ætlaði að verða fræg leikkona og lék vændiskonu í BBC þættinum The Vice

Í þættinum hér að ofan fer Halldóra í gegnum nokkuð erfiða æsku, hvernig hún fann sig aldrei í menntakerfinu, erfileika í tengslum við fíkniefni, barneignir og móðurhlutverkið og svo segir hún nokkrar lygilegar sögur, eins og þegar hún fór á Óskarinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.