Albumm

Fyrsta lagið af væntan­legri plötu Haf­dísar Huldar

Ritstjórn Albumm skrifar
Hafdís Huld undirbýr útgáfu plötunnar Vorvísur.
Hafdís Huld undirbýr útgáfu plötunnar Vorvísur.

Hafdís Huld var að senda frá sér ábreiðu af laginu Sól sól skín á mig en þetta er fyrsta lagið af væntanlegri plötu sem kemur út í vor og ber heitið Vorvísur.

Hafdís Huld hefur síðustu ár verið þekktust fyrir plötuna sína Vögguvísur sem er ein mest streymda plata á Íslandi á hverju ári. 

Lögin af Vögguvísum njóta mikilla vinsælda á Spotify og er lagið Dvel ég í draumahöll til að mynda komið með rúmlega tvær og hálfa milljón spilanir.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.









×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.