Tónlist

Föstudagsplaylisti Flaaryr

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Flaaryr við upptökur á post-sessjoni í Iðnó, áhorfendalausum tónleikum sem post-dreifing stóð fyrir.
Flaaryr við upptökur á post-sessjoni í Iðnó, áhorfendalausum tónleikum sem post-dreifing stóð fyrir. Natka Klimowicz

Reykvíkingurinn Diego Manatrizio gerir tilraunakennda tónlist undir nafninu Flaaryr, oftar en ekki vopnaður „undirbúnum“ klassískum gítar sem hann þjösnast á á ýmsa vegu og lúppar svo í marglaga tónverk.

Árið 2019 kom út stuttskífa hans Vegvísir á vegum post-dreifingar og von er á nýrri útgáfu frá lottólúppandi taktaflakkaranum í júní.

Fyrir viku síðan kom út platan af hverju grætur hundurinn minn meðan hann sefur? með sveitinni dreymandi hundi, en hún er samstarfsverkefni Diego og snerilsama pákusnáksins Ægis Sindra Bjarnasonar. Þess má geta að Ægir stendur að baki tónleikarýminu R6013 og plötuútgáfunni Why Not? ásamt því að tromma og framkalla ýmis önnur hljóð í hinum og þessum verkefnum.

Lagalistann segir Diego þemaskertan en hann er langur og litskrúðugur, og má á honum finna mikið af því sem einkennir tónlist Flaaryr, til að mynda lúpputendensa og óhefðbundin taktmynstur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.