Sigurður Guðmundsson gefur út Kappróður Ritstjórn Albúmm.is skrifar 27. apríl 2021 14:30 Sigurður Guðmundsson tónlistarmaður. Tónlistarmaðurinn Sigurður Guðmundsson gefur út lagið Kappróður sem er fyrsta smáskífan af samnefndri sólóplötu hans sem kemur út í byrjun sumars á vegum Record Records. Sigurður hefur komið víða við í tónlistarheiminum og er meðal annars meðlimur í hljómsveitunum Góss, Baggalúti og Hjálmum auk þess að vera landsmönnum vel kunnugur fyrir tónlistina sem hann hefur gefið út með Memfismafíunni og Sigríði Thorlacius. watch on YouTube Kappróður er fyrsta lagið sem sleppur út af væntanlegri samnefndri hljómplötu og lýsir Sigurður laginu sem hálfgerðri sjálfsævisögu með skálduðu ívafi: „Persónur sem lagið hverfist um eru eiginlega bara sögupersónur en eiga sér vissulega hliðstæður, eða í það minnsta skírskotanir í alvöru fólk. Ljóðið fjallar eiginlega um mis-velheppnaðar tilraunir til t.d. samskipta, athafna og jafnvel söngs. Og um hverfulleika daglegra hluta – fegurð ýsunnar, almenna skynsemi og kappróður okkar mannanna“ – segir Sigurður. Sem fyrr segir er von á breiðskífunni Kappróður í byrjun sumars. Lög og textar plötunnar eru öll samin af Sigurði sem fékk einvalalið tónlistarmanna með sér við gerð hennar. Upptökur fóru að mestu leyti fram í Hljóðrita undir styrkri stjórn Guðmundar Kristins Jónssonar sem einnig sá um hljóðblöndun og masteringu ásamt Sigurði sjálfum. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Bíó og sjónvarp
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Bíó og sjónvarp