Lífið

Reynslumiklir tónlistarmenn stofna tónlistarskóla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Reyndir tónlistarmenn starfa við skólann. 
Reyndir tónlistarmenn starfa við skólann. 

Á dögunum opnaði nýr tónlistarskóli sem ber nafnið Púlz en í honum er lögð áhersla á nútíma tækni og tónlistarsköpun.

Eigendur skólans eru Steinar Fjeldsted oft kenndur við Quarashi, Georg Holm sem allir þekkja úr hljómsveitinni Sigur Rós, Sigrún Guðjohnsen, tónlistarmaðurinn Markús Bjarnason og pródúsentinn og lagahöfundurinn Bjarki Ómarsson eða BOMARZ.

„Við hjá Púlz viljum virkja þennan kraft og gefa öllum tækifæri á að finna sitt svið til að blómstra og njóta sín. Við kennum á nýjustu tæki og tól sem notuð eru í dag til tónlistarsköpunar,” segir Steinar Fjeldsted einn af eigendum Púlz.

Púlz leggur mikla áherslu á sjálfstætt sköpunarferli með leiðsögn frá reyndu tónlistarfólki. Allir fæðast með sköpunarkraft. Í Púlz fá börn, unglingar og fullorðnir tækifæri, aðstöðu og leiðsögn til þess að smíða eigin tónlist í faglegu og skapandi umhverfi. Leiðbeinendurnir eru allt framúrskarandi tónlistarfólk með mikla reynslu úr tónlistarheiminum og við kennslu.

Mikið af flottum námskeiðum verða á dagskrá og má nefna t.d. Ableton Live grunnur með tónlistarkonunni Auði Viðarsdóttur eða Rauður eins og hún er iðulega kölluð. Rapp og Textagerð og DJ námskeið með Steinari Fjeldsted, tónlistarsköpun frá grunni með Markúsi Bjarnasyni O.fl. Einnig eru sumarnámskeiðin að hefjast og námskeið með Grétu Salóme, Gugusar og margt fleira.

Púlz er staðsett í Faxafeni 10 og er fyrir alla aldurshópa, frá 8 ára og upp úr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.