Ratchet & Clank: Rift Apart - Skemmtilegt ævintýri sýnir hvað hægt er að gera með PS5 Samúel Karl Ólason skrifar 9. júní 2021 08:45 Ratchet í góðum gír. Insomniac Games/PlayStation Studios Félagarnir Ratchet og Clank þurfa enn eina ferðina að bjarga alheiminum og jafnvel nokkrum slíkum í þetta sinn. Ratchet & Clank: Rift Apart er þrusugóð viðbót við gamla seríu sem skín í Playstation 5 en leikurinn er eingöngu gefinn út á þá leikjatölvu.
Eins og gengur og gerist í tölvuleikjum byrjar leikurinn á þann veg að allt er í blóma hjá þeim félögum Ratchet og Clank. Þeir tilheyra báðir Varðmönnum stjörnuþokunnar og er verið að halda skrúðgöngu þeim til heiðurs en allt fer auðvitað í rugl og þeir enda í annarri vídd. Þá týna þeir hvorum öðrum og Clank endar með henni Rivet. Við tekur heljarinnar ævintýri sem bæði börn og fullorðnir ættu að hafa gaman af. Leikurinn gæti allt eins verið tæplega sólarhringslöng kvikmynd. Þessi leikur er fyrsti nýi leikurinn í seríunni frá dögum PS3 en árið 2016 var þó gefin út endurgerð af upprunalega leiknum frá 2002 og svo í framhaldinu af því, kvikmynd. Sjá einnig: Ratchet og Clank snúa aftur Rift Apart er bara gerður fyrir PS5 og það tel ég hafa verið sterka ákvörðun. Hann lítur fáránlega vel út þar sem Ray Tracing tækni fær að njóta sín til hins ítrasta með tilheyrandi lýsingu og endurspeglun. Hægt er að velja tvær mismunandi stillingar í leiknum. Eina sem keyrir á 30 römmum á sekúndu (fps), með betri gæðum, og aðra sem keyrir á 60 römmum. Insomniac Games/PlayStation Studios Þá hef ég ekki orðið var við hið minnsta hikst. Ratchet og félagar ferðast oft og títt í gegnum víddar-göng einhver og jafnvel á nýjar plánetur án hleðsluskjáa. Þó mig gruni að nokkrir slíkir skjáir hafi verið faldir. Hér að neðan má sjá ítarlega yfirferð Digital Foundry um tæknina sem keyrir Rift Apart og þær lexíur sem Insomniac Games lærðu af framleiðslu Spider-Man: Miles Morales. Sjá einnig: Hinn nýi Spider-Man er jafnvel flottari og skemmtilegri en sá fyrri á PS5 Svipaða sögu er að segja af hljóði Rift Apart sem er einkar gott. Það má mæla sérstaklega með að spila leikinn með heyrnartólum sem styðja 3D-hljóð, þar sem leikurinn er framleiddur með slíkt í huga. Gátur og þrautir Í gegnum spilun leiksins þarf að leysa fjölmargar gátur og þrautir sem geta verið krefjandi og skemmtilegar. Ratchet og félagar safna nýjum vopnum og búnaði í gegnum leikinn og það getur borgað sig að snúa aftur til borða sem maður hefur þegar heimsótt, til að nota þann búnað til að komast á svæði sem maður komst ekki áður. Þar getur maður meðal annars fundið nýjar brynjur á persónur leiksins og gull-bolta. Þegar saga leiksins er búin er svo hægt að spila hann aftur með töluvert erfiðari óvinum. Insomniac Games/PlayStation Studios Samantekt-ish Ratchet, Rivet og Klank fara í gegnum hið skemmtilegasta ævintýri í Rift Apart. Það er erfitt að skemmta sér ekki við spilun leiksins og sagan er vel skrifuð og skemmtilega fyndin. Sagan tekur reyndar á á köflum líka. Sony hefur hingað til ekki gefið út mjög marga leiki eingöngu á PS5. Rift Apart fyllir mann tilhlökkunar þegar leikjaframleiðendur hætta að framleiða leiki einnig fyrir síðustu kynslóð leikjatölva og nýta getu tölvanna í botn. Það gæti þó verið smá tími í það enn, miðað við hve hægt virðist ganga að framleiða tölvurnar. Ratchet og Clank: Rift Apart kemur út fimmtudaginn 10. júní.
Leikjavísir Leikjadómar Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Fleiri fréttir Árlegt „Fifa“mót GameTíví GameTíví: Heldur för sinni um Night City áfram God of War Ragnarök á PC: Kratos er enn klikkaður Stiklusúpa: Allt það helsta frá kynningu Sony í gær GameTíví: Íslendingaslagur í Warzone Space Marine 2: Fyrirtaks skemmtun af gamla skólanum Ólympíukvöld hjá GameTíví GameTíví: Plortedo spilar sig gegnum Night City CCP kynnir nýjan leik í söguheimi EVE Online GameTíví: Skúrkur í skýjunum GameTíví: Stefna á þrjá sigra í Warzone Astro Bot: Astro stígur ekki feilspor í nánast fullkomnum leik Star Wars heimurinn skoðaður í GameTíví Star Wars Outlaws: Ekki eins hræðilegur og internetið segir Endurgreiða þeim fáu sem keyptu Concord GameTíví: Snúa hlekkjaðir saman úr sumarfríi Sjá meira