Kalt loft færist yfir landið með norðanátt í dag Atli Ísleifsson skrifar 11. júní 2021 07:09 Frá Grindavík. Vindur verður víða allhvass á landinu í dag. Vísir/Vilhelm Kalt loft færist yfir landið með norðanátt í dag, en von er á tíu til átján metrum á sekúndu með morgninum en heldur hægari norðvestanátt um austanvert landið þar til síðdegis. Yfirleitt rigning á láglendi um norðanvert landið en styttir upp og léttir til syðra.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu eitt til sex stig á láglendi fyrir norðan en nú þegar mælist frost á nokkrum fjallvegum, eins og til dæmis Holtavörðuheiði. „Það gæti því mögulega verið krapi eða snjóþekja á vegum norðantil og færðin eftir því. Heldur hlýrra sunnanlands, einkum ef að sólar nýtur og má reikna með hiti á bilinu 8 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Vindur verður þó víða allhvass, líkt og víðar á landinu, einkum í vindstrengjum við fjöll sem gæti tekið í ökutæki sem eru viðkvæmt fyrir vindi. Lægir og styttir upp í nótt. Austlæg átt 5-10 m/s og úrkomulítið veður framan af morgundeginum.“ Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austlæg átt 5-10 m/s, skýjað með köflum og úrkomulítið. Gengur í austan 10-18 sunnantil á landinu um kvöldið með dálítilli rigningu, hvassast með ströndinni. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast suðvestanlands. Á sunnudag: Austlæg átt 8-15 m/s og víða rigning, en slydda eða snjókoma til fjalla á norðan- og austanverðu landinu. Norðlægari um kvöldið og styttir upp suðvestantil. Hiti frá 1 stigi í innsveitum norðaustanlands, upp í 9 stig syðst. Á mánudag: Norðlæg átt 5-13 m/s. Dálítil slydda eða rigning um norðanvert landið og rigning á köflum sunnantil, en yfirleitt þurrt á Vesturlandi. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Austan- og norðaustan átt, víða 5-10 m/s en 10-15 m/s með suðausturströndinni. Skýjað að mestu og sums staðar dálítil væta, en þurrt um landið vestanvert. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Á miðvikudag: Norðlæg átt, skýjað að mestu og sumsstaðar lítilsháttar slydda eða rigning norðan- og austanlands, en þurrt sunnantil á landinu. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast syðst. Á fimmtudag (lýðveldisdagurinn): Útlit fyrir hæga norðlæga eða breytilega átt. Skýjað með köflum og stöku skúrir eða slydduél víða um land. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Veður Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Innlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Fleiri fréttir Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Sjá meira