Lífið

„Áttu að líta út eins og þú sért að njóta þín?“

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Elísabet Bretadrottning mætti á fund G7 ríkjanna í gær.
Elísabet Bretadrottning mætti á fund G7 ríkjanna í gær. EPA/Andrew Parsons

Elísabet Bretadrottning mætti á fund G7 ríkjanna í gær til þess að hitta leiðtoga þeirra. Myndatökur tóku við drottningunni sem geta oft og tíðum tekið langan tíma.

Nokkuð vandræðalega stemning virðist hafa verið í myndatökunum. Drottningin dró þá fram gráan húmorinn og spurði Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hvort hún ætti að líta út eins og hún nyti sín.

„Já, algjörlega! Og við höfum verið að njóta okkar, þrátt fyrir þessar myndatökur,“ svaraði Johnson til.

Upp hófust hlátraköll meðal leiðtoganna sem virtust hafa gaman að drottningunni og hispurslausri spurningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.