Raufarhólshelli breytt í bíósal í fyrsta skipti á RIFF Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 10. september 2021 17:02 Hellabíó verður í boði á RIFF í ár. Á RIFF í ár verður ævintýramynd með David Bowie sýnd í iðrum jarðar. Takmarkaður fjöldi miða verður í boði en miðasala hófst nú klukkan fjögur.
Undirbúningur fyrir átjándu Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík stendur nú sem hæst en hátíðin hefst í lok mánaðar. Margir spennandi sérviðburðir verða á dagskrá og einn ef þeim er hellabíó en til stendur að breyta Raufarhólshelli í bíósal þann 6. október næstkomandi. Sýnd verður geysivinsæl ævintýramynd, Völundarhús, eða Labyrinth, með David Bowie í aðalhlutverki. Gott að taka með kakó og teppi Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Arctic Adventures sem m.a sér um nauðsynlegan öryggisbúnað. Tvær sýningar eru í boði og miðafjöldi er mjög takmarkaður. Miðasala er hafin á síðu RIFF. „Þetta er í fyrsta sinn sem Raufarhólshellir sýnir bíó. Auðvelt aðgengi er að hellinum sem er aðeins í um fjörutíu mínútna keyrslu frá Reykjavík og næg bílastæði fyrir utan. Hellirinn sjálfur er einstök upplifun og rammar inn sýninguna á Labyrinth sem eins og nafnið gefur til kynna gerist í völundarhúsi. Þetta er því einstakt tækifæri fyrir fjölskylduna að gera eitthvað óvenjulegt og ævintýralegt saman,“ segir í tilkynningu frá RIFF. Tvær sýningar verða 6. október klukkan 18 og 21. „Fyrir þá sem ekki hafa komið, þá er hægt að skoða hellinn á hefðbundinn og auðveldan hátt. Hellisgangurinn var víða varðaður stórum steinum sem áður ollu því að hann var erfiður yfirferðar. Nú er þar göngubrú og göngustígar og hellirinn því flestum fær. Hluti hellarins er lýstur með áhrifaríkum hætti sem kallar fram litbrigði hraunsins og sýnir þá öflugu eldvirkni sem á sínum tíma mótaði hraunganginn. Inni í hellinum þar sem sýningin mun fara fram er pallur með stólum á.“ Gott er að klæða sig vel og taka með sér heitt kakó og teppi því hitastigið í hellinum er um átta gráður. Svo er bara að njóta sýningarinnar með þessari einstöku upplifun í skjóli fyrir veðri og vindum. Salernisaðstaða er á staðnum og fær fólk hjálm þegar það gengur inn en það þarf ekki að hafa hjálminn á meðan sýningu stendur. Labyrinth með David Bowie sem kom út árið 1986 hefur skapað sér sérstakan sess í hjörtum margra og nýtur myndin ekki síður vinsælda hjá börnum í dag sem og fullorðnum sem njóta þess að rifja upp gömul kynni við myndina með afkvæmum sínum. Í stuttu máli fjallar myndin um hina 16 ára gömlu Söru (Jennifer Connelly) sem þarf að takast á við yfirnáttúrulegt völundarhús til að bjarga nokkura mánaða gömlum bróður sínum úr klóm Goblin konungs (David Bowie) en hún óvart óskaði sér þess að konungurinn myndi taka hann burt því henni fannst hann pirrandi. Flest önnur hlutverk myndarinnar fyrir utan Söruh, bróður hennar og Goblin konung eru leikin af brúðum úr smiðju Jim Henson.
Bíó og sjónvarp RIFF Ölfus Tengdar fréttir Verðlaunamyndir frá Cannes sýndar á RIFF Fjöldi verðlaunamynda frá Cannes verða sýndar í flokknum fyrir Opnu hafi á RIFF hátíðinni í ár. 8. september 2021 17:00 Joker sýnd í Hörpu á RIFF: Tónlist Hildar Guðna flutt af Kvikmyndahljómsveit Íslands Tónlist af ýmsu tagi verður í forgrunni á RIFF í ár sem hefst í lok mánaðar, þann 30. september til 10. október. Meðal annars verður sérstök sýning á Óskarsverðlaunamyndinni Joker við undirspil hljóðfæraleikara. 6. september 2021 17:10 Nýjasta tækni og kvikmyndir á RIFF í ár Hvar liggja mörkin milli kvikmynda og tölvuleikja? Þessari spurningu er velt upp á Alþjóðlegu kvikmyndahátíð Reykjavíkur í ár, í nýjum flokki sem ber nafnið Nýjasta tækni og kvikmyndir, eða RIFF XR upp á ensku. 3. september 2021 10:31 Sundbíóið hefur fest sig í sessi á RIFF Nú fer að styttast í RIFF kvikmyndahátíðina. Upplifunarbíóið í Sundhöllinni verður aftur einn af sérviðburðum hátíðarinnar, enda hefur sundbíóið fest sig í sessi sem ein vinsælasta sýningin á RIFF. 30. ágúst 2021 10:35 Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Fleiri fréttir Fagnaðarfundir þegar Bong Joon-Ho hitti Dag Kára Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Ný kitla: Ellie og Joel komast aftur í hann krappan Hjem til jul aftur á skjáinn Segir Murphy gera lítið úr kynferðisofbeldi Frumsýning á Vísi: Helga Braga í kolsvartri kómedíu Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Kynntu dagskrá RIFF 2024 Þakkaði fyrir sig á íslensku Shogun á spjöld sögunnar á Emmy verðlaunahátíðinni Snerting framlag Íslands til Óskarsins „Myndin byggir á minni eigin lífsreynslu“ Hlátur og grátur á Ljósvíkingum Ljósbrot valin besta norræna kvikmyndin Sjá meira
Verðlaunamyndir frá Cannes sýndar á RIFF Fjöldi verðlaunamynda frá Cannes verða sýndar í flokknum fyrir Opnu hafi á RIFF hátíðinni í ár. 8. september 2021 17:00
Joker sýnd í Hörpu á RIFF: Tónlist Hildar Guðna flutt af Kvikmyndahljómsveit Íslands Tónlist af ýmsu tagi verður í forgrunni á RIFF í ár sem hefst í lok mánaðar, þann 30. september til 10. október. Meðal annars verður sérstök sýning á Óskarsverðlaunamyndinni Joker við undirspil hljóðfæraleikara. 6. september 2021 17:10
Nýjasta tækni og kvikmyndir á RIFF í ár Hvar liggja mörkin milli kvikmynda og tölvuleikja? Þessari spurningu er velt upp á Alþjóðlegu kvikmyndahátíð Reykjavíkur í ár, í nýjum flokki sem ber nafnið Nýjasta tækni og kvikmyndir, eða RIFF XR upp á ensku. 3. september 2021 10:31
Sundbíóið hefur fest sig í sessi á RIFF Nú fer að styttast í RIFF kvikmyndahátíðina. Upplifunarbíóið í Sundhöllinni verður aftur einn af sérviðburðum hátíðarinnar, enda hefur sundbíóið fest sig í sessi sem ein vinsælasta sýningin á RIFF. 30. ágúst 2021 10:35