Skúrir eða slydduél í flestum landshlutum Atli Ísleifsson skrifar 22. september 2021 07:26 Ferðamenn við Hallgrímskirkju. Hiti á landinu í dag verður á bilinu tvö til átta stig. Vísir/Vilhelm Lægðin sem olli óveðri á landinu í gær er nú komin austur fyrir Jan Mayen, en nú í morgunsárið mælist enn hvassviðri úti við norðausturströndina. Þar dregur úr vindi á næstu klukkustundum.
Á vef Veðurstofunnar segir að í dag sé útlit fyrir vestlæga átt, yfirleitt á bilinu átta til þrettán metra á sekúndu. Skúrir eða slydduél í flestum landshlutum og vindur geti aukist tímabundið meðan á hryðjunum standi. Hiti á landinu verður á bilinu tvö til átta stig í dag. „Í kvöld lægir og léttir til á sunnan- og vestanverðu landinu og kólnar allvíða niður að frostmarki og þá getur myndast hálka á vegum. Það eru jafndægur á hausti í dag og kominn sá tími þegar vera þarf á varðbergi gagnvart hálku. Á morgun nálgast lægð úr suðvestri og fer miðja hennar yfir landið. Þá má búast við austlægri og síðar breytilegri átt 5-13 m/s með rigningu. Á Norður- og Austurlandi verður þurrt þangað til síðdegis, en þá fer einnig að rigna þar og slydda á heiðum. Hiti 2 til 9 stig, mildast við suðurströndina. Dregur síðan úr vindi og úrkomu á föstudag. Á laugardag nálgast síðan enn ein lægðin, og má því gera ráð fyrir að kosningadagurinn verði vinda- og vætusamur,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austlæg og síðar breytileg átt 5-13 m/s og rigning, en þurrt á Norður- og Austurlandi þangað til síðdegis. Slydda á heiðum á norðanverðu landinu. Hiti 2 til 9 stig, mildast við suðurströndina. Á föstudag: Austlæg eða breytileg átt 3-10. Skýjað og lítilsháttar væta í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Austan 10-18 og víða rigning, en slydda á heiðum norðantil á landinu. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á sunnudag: Stíf suðaustan- og austanátt. Rigning suðaustanlands, en lítilsháttar væta um landið vestan- og norðanvert. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir austlæga átt. Væta af og til á austanverðu landinu. Þurrt og bjart með köflum vestantil og hlýtt þar.
Veður Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira