Albumm

Hafið það nógu vel kæst

Ritstjórn Albúmm.is skrifar

Hel Freðinn hrynjandi og rammar rímur á kjarnyrtri og góðri frónlensku. Hljómar sem hylli en heimamenn geta glaðst. 

Lengi hefur verið pískrað í hornum um háva, páfa og máfa sem og orðrómar um gleymda Pápíska töfra sem og annað fjölkynngi. Var þetta aðeins fyrirboðinn… Seiðskrattar tveir hafa um árabil hugað að útgáfu Páfamáls.

Brr the Beatmaker og MC Bjór sá forni fúskari hafa magnað hér seið. Samann eru þeir: R&B (Róbert&Bjarni) Endur fyrir löngu hófst mallið og var Það geymt í skúffu og látið gerjast þangað til við var að slá í. En seiðskrattinn slengdu Marmelaði Verslunum í föt og hafið það akkúrat nógu vel kæst.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.