Einvala lið með Hebba í nýjasta slagaranum Stefán Árni Pálsson skrifar 22. október 2021 10:56 Herbert Guðmundsson hefur sent frá sér nýtt lag þar sem hann syngur um einmana sálir. aðsend Tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson hefur sent frá sér lagið Með stjörnunum.
Lagið er samvinnuverkefni Herberts, Halldórs Á. Björnssonar hljómborðsleikara og framleiðanda, Þórsteins Inga Einarssonar og Brynju Lísu Þórisdóttur. Halldór Á. Björnsson sá um upptökur á laginu en það var hljóðblandað í Austurríki af Lukas Hillebrand. Lukas þessi og Þórsteinn hafa áður leitt hesta sína saman í laginu Schakles sem hefur notið mikilla vinsælda en Þórsteinn þessi varð í fjórða sæti í austurrísku hæfileikakeppninni Die große Chance árið 2014. Lagið fjallar um mann í ástarsorg sem hugsar til konunnar sem hann elskar. Hann horfir til stjarnanna og finnst sem hann sjái hana þar og veltir fyrir sér hvort hún sé jafn einmana og hann. Lagið er komið út á Spotify og má heyra hér fyrir neðan: Það má sannarlega segja að Herbert, sem flestir þekkja sem Hebba, sé með mörg járn í eldinum. Hann er iðinn við að koma fram á allskyns viðburðum en auk þess var Herbert fenginn til að leika sjálfan sig í þáttanna Brúðkaupið mitt sem er framhald Jarðarfararinnar minnar. Þar er sjálfur Laddi í aðalhlutverki en Herbert leikur þar sjálfan sig sem og söngvararnir Kristján Jóhannsson og Björgvin Halldórsson. Herbert ásamt Björgvini Halldórssyni og Kristjáni Jóhannssyni við tökur á þáttunum Brúðkaupið mitt.
Tónlist Mest lesið Óvæntur glaðningur í veggjunum Lífið Frumsýning á Vísi: Hafa aldrei gengið eins langt og í Alheimsdraumnum Lífið Heitustu trendin árið 2025 Lífið Með þvottaklemmu á sér í beinni frá eldunum Lífið Bönnuð innan 12 af ástæðu Lífið Heimili Hanks rétt slapp Lífið Tíu góð andlitskrem í vetrarkuldann Lífið Glæsihús í Kópavogi með stórbrotnu útsýni Lífið Skilnaður eftir tuttugu ára samband Lífið Patrik í hálfrar milljón króna skíðagalla Tíska og hönnun Fleiri fréttir Skilnaður eftir tuttugu ára samband Með þvottaklemmu á sér í beinni frá eldunum Bönnuð innan 12 af ástæðu Óvæntur glaðningur í veggjunum Glæsihús í Kópavogi með stórbrotnu útsýni Frumsýning á Vísi: Hafa aldrei gengið eins langt og í Alheimsdraumnum Heimili Hanks rétt slapp Tíu góð andlitskrem í vetrarkuldann Heitustu trendin árið 2025 Tónlistarhátíðin Xjazz snýr aftur í Iðnó um helgina Tóku sögufrægt 340 fermetra einbýli við Bergstaðastræti í gegn Þjóðin mætt að hreyfa sig og mömmurnar eru ekki skildar eftir út undan Harmleikur í Hollywood: Hús fræga fólksins fuðra upp „Veganismi er hvergi skilgreindur sem fullkomnun eða ekkert“ Dóttir Anítu Briem og Hafþórs komin með nafn Gott að sakna en verðum að hugsa í núinu Allt búið hjá Austin og Kaiu Hefur grátið óteljandi tárum yfir missinum Aron Can og fjölskylda í draumkenndu fríi Lækaði óvart fimm ára gamla mynd Kynlífsráðgjafi keypti af prófessornum „Fékk mjög mikið í magann og fór næstum því að grenja“ Peter úr Peter, Paul and Mary látinn Byggir snjóhús en ætlar að verða dýralæknir í framtíðinni Júlí og Ágúst keppa í Söngvakeppninni í febrúar Af og frá að Iceguys taki þátt í Söngvakeppninni Mjög tilfinningaríkt að vera með kraftaverk í höndunum Sex daga ólöglegu „megareifi“ loks lokið Laufey ástfangin í eitt ár Getur enn þann dag í dag ekki horft á barnarúm Sjá meira