Bríet gerði áhorfendur agndofa í Hörpu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 25. október 2021 09:40 Bríet byrjaði tónleikana þannig að hún kom upp úr sviðinu og hélt svo áfram að svífa ofar og ofar. Fyrsta lagið söng hún hangandi í vírum úr loftinu, í kjól sem ætlaði engan endi að taka. Berglaug Petra Söngkonan Bríet hélt tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu á föstudag. Á tónleikunum sýndi þessi listakona enn og aftur hversu ótrúlega hæfileikarík og fjölhæf hún er.
Ef ég væri tónlistargagnrýnir fengi Bríet fullt hús stiga fyrir tónleikana á föstudag. Söngurinn var óaðfinnanlegur að mati blaðamanns og Bríet sennilega aldrei verið betri. Söngkonan spilaði bæði á gítar og píanó á milli þess sem hún heillaði áhorfendur upp úr skónum með sjarma og húmor. Bríet settist við flygilinn og þá voru myndavélar á henni svo áhorfendur fengu að fylgjast með hverju smáatriði á skjá.Berglaug Petra Áhorfendur fylgdust agndofa með opnunarlaginu, þar sem Bríet birtist upp úr gólfinu og sveif svo hátt yfir áhorfendur á meðan hún söng og dansaði, föst í víra. Danshæfileikar hennar komu líka mörgum á óvart. Sviðsmyndin var ótrúlega vel heppnuð og tónlistarstjórnin var líka alveg fáránlega flott. Áhorfendur fylgdust agndofa með Bríet syngja svífandi í loftinu.Berglaug Petra Saga Garðars kynnti Bríet inn á svið. Hún bauð áhorfendum að taka eins og eina mynd, en eftir það mátti ekki taka neinar myndir á tónleikunum þar sem verið var að taka þá upp fyrir sjónvarpsútsendingu síðar. Bríet sýndi hversu stórkostlega hæfileikarík hún er og spilaði ýmist á gítar eða flygil á milli þess sem hún dansaði um sviðið og söng.Berglaug Petra Aron Can átti að vera leynigestur á tónleikunum og taka með henni lagið Feiminn. Þau hafa þekkst alveg síðan í grunnskóla. Aron fékk því miður Covid og gat ekki mætt. Friðrik Dór Jónsson kom þó og tók með henni lagið Hata að hafa þig ekki hér. Magnús Jóhann tónlistarstjóri sýningarinnar spilaði í turninum en í lokalaginu kom hann niður á sviðið.Berglaug Petra Eftir uppklapp söng Bríet óútgefið lag, Cold feet. Hún frumsýndi einnig tónlistarmyndbandið við lagið á skjá á sviðinu. Persónulega er ég mjög spennt fyrir því að lagið Cold feet fari í spilun. Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir sem ljósmyndarinn Berglaug Petra tók í Hörpu á föstudag. Bríet var með tónlistarfólk eins og Rubin Pollock, Þorleif Gauk, Magnús Jóhann, Magnús Trygvason og fleiri með sér á sviðinu. Berglaug Petra Bríet notaði ekki bara sviðið heldur gekk líka um salinn og söng.Berglaug Petra Friðrik Dór mætti á svið og söng með henni Hata að hafa þig ekki hér. Hann var mjög hás en lét það ekki stoppa sig. "Þú átt það inni hjá mér," sagði hann við Bríet á sviðinu.Berglaug Petra Ótrúlega flottur hópur hljóðfæraleikara og tónlistarfólks tók þátt í verkefninu með Bríet.Berglaug Petra Berglaug Petra Turn hljóðfæraleikaranna var líka vel nýttur sem skjár á meðan tónleikunum stóð. Virkilega flott sviðsmynd, sem gerði upplifunina einstaka fyrir áhorfendur í sal.Berglaug Petra Bríet dansaði nútímadans, hoppaði um allt og tók líka heljastökk og handahlaup í einu laginu.Berglaug Petra Bríet sat efst í turninum og spilaði Rólegur kúreki. Hún setti auðvitað á sig kúrekahatt fyrir lagið.Berglaug Petra Friðrik Dór og Bríet fífluðust saman á sviðinu áður en þau tóku lagið sitt.Berglaug Petra Turn hljóðfæraleikaranna var líka vel nýttur sem skjár á meðan tónleikunum stóð. Virkilega flott sviðsmynd, sem gerði upplifunina einstaka fyrir áhorfendur í sal.Berglaug Petra Natalie Hamzehpour farðaði Bríet eins og venjulega.Berglaug Petra Bríet spilaði á flygilinn með langan slóða á eftir sér. Síðasta lag kvöldsins söng hún sitjandi á gólfinu.Berglaug Petra Berglaug Petra Bríet er augljóslega ekki lofthrædd. Eitt lagið söng hún standandi ofan á þriggja hæða turninum á sviðinu.Berglaug Petra Listamaðurinn Bríet sýndi á tónleikunum hversu einstakur dansari hún er.Berglaug Petra Yfir tvöþúsund Íslendingar sáu Bríet á tónleikunum tveimur á föstudag.Berglaug Petra Bríet syngur ofan á turninum á sviðinu. Hún var sem betur fer fest í vír enda hátt fall niður.Berglaug Petra Berglaug Petra Undirrituð hefur séð stjörnur eins og Beyoncé og Lady Gaga á sviði og Bríet gefur þeim ekkert eftir. Hún er einhver blanda af Björk Guðmundsdóttir, Robyn, Loreen og Gaga en er samt alveg einstök.Berglaug Petra Hin 22 ára Bríet sagðist þakklát fyrir að fá að kveðja plötuna sína loksins. Platan Kveðja, Bríet hefur fengið ótrúlegar viðtökur.Berglaug Petra Bríet söng Esjan í fallegu fjaðrapilsi. Áhorfendar nánast héldu inni í sér andanum á meðan. Salurinn tók svo allur undir í viðlaginu.Berglaug Petra Búningar Bríetar voru einstaklega vel heppnaðir.Berglaug Petra Hópurinn á bak við tónleikana.Berglaug Petra
Tónlist Harpa Menning Leikhús Samkvæmislífið Mest lesið Fær stóru tíðindin á sama tíma og við hin Lífið Myndaveisla: Fegurstu fljóð Vesturbæjarins blótuðu þorrann Lífið Baldoni birtir myndband af tökum á umdeildu atriði Lífið Sagt að koma strax upp á bráðamótttöku Lífið Myndaveisla: Rífandi stemning og hópsöngur í Breiðholti Lífið Harry fær afsökunarbeiðni Lífið Myndaveisla: Dansað fram á nótt á þorrablóti Keflavíkur Lífið „Að maður geti gert allt sjálfur hefur kennt mér margt“ Lífið Meintur stuldur á borð RÚV Lífið Deila um gervigreind skekur Hollywood í aðdraganda Óskarsins Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sagt að koma strax upp á bráðamótttöku Harry fær afsökunarbeiðni Baldoni birtir myndband af tökum á umdeildu atriði Myndaveisla: Fegurstu fljóð Vesturbæjarins blótuðu þorrann Fær stóru tíðindin á sama tíma og við hin Myndaveisla: Rífandi stemning og hópsöngur í Breiðholti Kennir óprúttnum aðila um Instagram aðförina að eiginkonunni Meintur stuldur á borð RÚV Myndaveisla: Dansað fram á nótt á þorrablóti Keflavíkur Fyrsta samfélagsmiðlastjarna Íslands: „Ert þú að segja að ég sé feitur?“ Heiðar Logi og Anný orðin foreldrar Guðni og Margrét selja svansvottaða eign á Selfossi „Að maður geti gert allt sjálfur hefur kennt mér margt“ Brunabjallan fór í gang í miðjum fréttatíma Risa endurkoma eftir áratug í dvala Kúrekarnir tóku völdin í Grafarvogi Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú svarar Frúnni í Hamborg Fimmtán árum fagnað í sólinni Þetta hafði fólk að segja eftir lokaþáttinn af Vigdísi Ofsafengin sjálfsrækt getur reynst stórskaðleg Kjartan og Tekla tækla yfirþyngd og orkuleysi Hommalegasta blómabúðin opnuð með stæl Stjörnulífið: Menningarsjokk í Vesturbænum og öskrandi á Tene Einföld atriði fyrir aukna vellíðan í skammdeginu Hera gerir upp skítkastið: Lágværi meirihlutinn jafn sekur og háværi minnihlutinn Þéna töluvert þrátt fyrir að vera ekki til Krakkatían: Grænland, galdrakarl og Greppikló Grundvallarmisskilnings gæti um þaksvalir á Íslandi „Lífið væri svo miklu leiðinlegra ef ég ætti ekki bróður með Downs“ Kenndi sjálfum sér um í tuttugu ár Sjá meira