Dóra Júlía tekur við Íslenska listanum á FM957 Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 17. nóvember 2021 17:15 DJ Dóra Júlía tekur við Íslenska listanum á laugardaginn. FM957 Plötusnúðurinn og fjölmiðlakonan Dóra Júlía Agnarsdóttir hefur verið ráðin til Sýnar og fer hún af stað með sinn fyrsta þátt af Íslenska listanum á FM957 á laugardag.
Dóra Júlía mun sjá um Íslenska listann á FM957 alla laugardaga. „Frá tvö til fjögur er Íslenski listinn á FM957. Ég mun fara yfir tuttugu heitustu og vinsælustu lög vikunnar. Það verður ótrúlega gaman að vera með puttann á púlsinum á heitustu lögunum,“ segir plötusnúðurinn í samtali við Lífið. Stemning á laugardögum „Það er svo mikil stemning að hlusta á góða tónlist á laugardegi, kannski nýbúinn í brunch eða kannski að fara að gera sig til fyrir eitthvað seinni partinn eða um kvöldið. Þá er hægt að tjúna inn og fylgjast með því sem er í gangi í tónlistarsenunni hérna heima, bæði erlent og íslenskt.“ Dóra Júlía hefur starfað hjá K100 og Mbl síðustu misseri en hefur nú þegar hafið störf hjá Sýn. „Það er ótrúlega mikið af fjölbreyttum tækifærum hérna og ég er mjög spennt að þróast í starfi hér og prófa eitthvað nýtt. Mér finnst alltaf gaman að ögra mér og það verður gaman að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér hér hjá Sýn,“ segir Dóra Júlía. „Ég fæ möguleika á að taka þátt í mjög fjölbreyttum verkefnum sem mér finnst mjög skemmtilegt. Ég er spennt fyrir útvarpinu og að fylgjast með því sem er spennandi að gerast í tónlistarsenunni.“ Samhliða Íslenska listanum fer Dóra Júlía af stað með þáttinn Þetta reddast á Stöð 2.Stöð 2 Þáttur á Stöð 2 Samhliða því að sjá um Íslenska listann á FM957 mun hún fjalla um hann hér á Lífinu á Vísi. Í desember fer hún svo af stað með sjónvarpsþáttinn Þetta reddast á Stöð 2. „Ég er spennt að geta tengt þetta allt saman og skrifað tónlistartengdar fréttir og um menningarlífið á Íslandi. Það er svo ótrúlega margt spennandi í gangi, á ýmsum listsviðum sem er gaman að vekja athygli á. Svo er ég líka spennt að vinna fyrir Stöð 2. Frá því ég var lítil hefur það alltaf verið draumur að vera í sjónvarpi, mig hefur alltaf langað mjög mikið til að prófa það,“ segir Dóra Júlía spennt. „Sjónvarpsþátturinn er viðtalsþáttur með afar óhefðbundnu sniði á léttum, skemmtilegum og einlægum nótum,“ segir hún um þættina sem fara af stað í desember. „Ég er jákvæð og bjartsýn og hef gaman af lífinu og tilverunni og hlakka til að deila því með hlustendum, lesendum og áhorfendum.“ Fyrsti Íslenski listinn frá Dóru Júlíu fer í loftið klukkan 14 á laugardag á FM957.
FM957 Fjölmiðlar Vistaskipti Íslenski listinn Mest lesið Afhjúpaði óléttuna á epískan hátt enn og aftur Tíska og hönnun Héldu upp á eins árs afmæli Heiðdísar Emblu Lífið Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Gagnrýni Þau allra nettustu á Met Gala Tíska og hönnun Jóhanna og Geir trúlofuðu sig við Eiffel-turninn Lífið Handtekinn eftir að hafa keyrt niður hliðið að heimili Aniston Lífið Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Lífið Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Tónlist Blautir búkar og pylsupartí Menning Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp