Lífið

Elísa­bet Ormslev eignaðist drauma­dreng: „Alveg full­kominn“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Elísabet Ormslev söng á dívukvöldinu á tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð fyrr í mánuðinum. Hún á ekki langt að sækja dívuhæfileikana, enda dóttir Helgu Möller.
Elísabet Ormslev söng á dívukvöldinu á tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð fyrr í mánuðinum. Hún á ekki langt að sækja dívuhæfileikana, enda dóttir Helgu Möller. Bylgjan

Söngkonan Elísabet Ormslev og Sindri Þór Kárason hljóðvinnslumaður eignuðust dreng 11. desember. Elísabet birti nokkrar myndir af frumburðinum á samfélagsmiðlum í gær. 

„Tíu fingur, tíu tær og alveg fullkominn. Velkominn í heiminn draumadrengur,“ skrifar söngdívan við myndirnar. Elísabet og Sindri byrjuðu saman í lok síðasta árs. Þetta er fyrsta barn Elísabetar en Sindri á barn fyrir úr fyrra sambandi. 

Á meðgöngunni grínaðist Elísabet með að það yrði erfitt að velja ættarnafn fyrir barnið. 

„Michelsen, Ormslev, Möller, Petersen eða Knudsen koma til greina.“


Tengdar fréttir

Elísabet Ormslev á von á barni

Söngkonan Elísabet Ormslev tilkynnti um helgina að hún á von á barni með kærasta sínum Sindra Kárasyni. 

Elísabet Ormslev og Sindri nýtt par

„Það verður að segjast að það er extra skemmtilegt að fara inn í 2021 með þessum. Gleðilegt nýtt ár elsku vinir og takk fyrir það liðna,“ skrifar söngkonan Elísabet Ormslev í færslu á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.